Engum alikálfi slátrað á þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins 18. febrúar 2009 19:39 Jón Magnússon
Jón Magnússon sem verið hefur utan flokka eftir að hann sagði skilið við Frjálslynda flokkinn gekk í dag til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann segir engum alikálfi hafa verið slátrað á þingflokksfundi í dag þegar endurkoma hans var tilkynnt en Jón var áður varaþingmaður flokksins. „Týnda syninum er alltaf vel tekið þegar hann kemur heim en það var engum alikálfi slátrað sem betur fer," segir Jón aðspurður um viðtökurnar á þingflokksfundi sjálfstæðismanna í dag. Hann segist enn vera að velta fyrir sér hvort hann sé kominn heim en það taki yfirleitt einhvern tíma eftir langan aðskilnað. Jón var á árum áður mikill sjálfstæðismaður og gegndi meðal annars formennsku í Heimdalli félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Hann segir ekki hafa komið til greina að fara í annan flokk eftir að hann sagði skilið við Frjálslynda. „Ég fékk ýmsar áskoranir frá ýmsum flokksmönnum sem töldu að þetta hefði mikla þýðingu og skipti máli fyrir flokkinn. Þeir vildu meina að þeir sem hefðu verið í frjálslynda armi flokksins tækju þátt í störfum hans. Ég taldi að núna væri lag til þess að byggja upp Sjálfstæðisflokkinn sem þann þjóðarflokk sem ég hef alltaf viljað," segir Ólafur. Hann segist yfirleitt vera fljótur að taka ákvarðanir þegar hann taki þær en ekki hafi farið fram neinar formlegar viðræður fyrr enn seinni partinn í gær og síðan í dag. Jón segir að næsta ákvörðun snúist síðan um hvort hann fari í prófkjör fyrir alþingiskosningar. „Nú þarf ég að vera í sambandi við þá sem hafa lagt hart mér að gefa kost á mér og ég útiloka ekki neitt. Sú ákvörðun verður að bíða þar til í fyrramálið."
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Innlent Fleiri fréttir Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um Versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Sjá meira