Lúinn eftir erfiðar æfingar 14. desember 2009 04:00 erfiðar æfingar Rúnar Freyr og Gísli Örn Garðarsson í ógurlegri teygjuæfingu fyrir Faust. Björn Hlynur Haraldsson fylgist spenntur með.fréttablaðið/stefán „
Hópurinn er hægt og rólega að komast í form,“ segir Rúnar Freyr Gíslason sem leikur í Faust sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu 15. janúar. Leikritið krefst mikils líkamlegs styrks og hafa Rúnar Freyr og samleikarar hans æft stíft undanfarinn einn og hálfan mánuð undir styrkri stjórn leikstjórans Gísla Arnar Garðarssonar og þrekþjálfarans Jóhannesar Níels Sigurðssonar. „Þetta er ansi hressandi eftir dálítið mörg blaserjakkahlutverk sem ég hef verið í, að fá allt í einu að hreyfa sig almennilega,“ segir Rúnar Freyr. „Að fá að klifra svolítið, róla sér og hoppa á trampólíni er bara æðislegt. Við byrjum alltaf í fótbolta á morgnana og tökum svo þrek og púl. Þetta er trúlega gott fyrir líkamann og ekki síst sálina. Maður er alltaf einhvern veginn hress og kátur.“ Rúnar viðurkennir samt að verkefnið sé mjög strembið og að hver dagur sé mikil þrekraun. „Ég er að sýna í Söngvaseiði og Fjölskyldunni í Borgarleikhúsinu fjórar til sex sýningar á kvöldin. Svo eru æfingar á Faust alla daga þannig að maður er orðinn ansi lúinn. En þetta er samt svo gaman að ég kvarta ekki.“ Nýlega birtist viðtal í Fréttablaðinu við konu hans Selmu Björnsdóttur sem er önnum kafin við undirbúning á söngleiknum Oliver! sem verður frumsýndur á annan í jólum. Þar var leitt að því líkum að Rúnar Freyr myndi sjá um jólahaldið vegna anna Selmu. „Ég kasta því bara til baka. Selma sér um það,“ segir Rúnar og hlær. Hann er að vonum spenntur fyrir frumsýningardegi Faust. „Maður verður bara að fara rólega í jólasteikina sem Selma ætlar að elda, þannig að maður sé ekki of þungur á sér 15. janúar.“ freyr@frettabladid.is
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fleiri fréttir Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Sjá meira