Samráð við UNESCO um Valhallarreitinn 4. nóvember 2009 06:00 Valhöll brunnin Þingvallanefnd er að hefja undirbúning að því að taka ákvörðun um framtíð staðarins þar sem Hótel Valhöll stóð áður.Fréttablaðið/Arnþór
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, mun koma að ákvörðun um framtíð reitsins þar sem Hótel Valhöll stóð á Þingvöllum. Hótel Valhöll gjöreyðilagðist í stórbruna 10. júlí í sumar. Rústirnar voru fjarlægðar og síðan tyrft yfir reitinn. Enn er eftir að ákveða hvað gert verður á staðnum. Þingvallanefnd ræddi málið á fundi í haust. „Í máli nefndarmanna kom fram að öll ákvarðanataka varðandi Valhallarreitinn er viðkvæm og mikilvægt að ákvarðanir séu teknar að vel ígrunduðu máli. Sú hugmynd kom upp að landsmenn fái tillögurétt um nýtingu Valhallarreitsins,“ segir í fundargerð Þingvallanefndar. Þingvellir fóru á heimsminjaskrá UNESCO 2004. Stofnunin gerir strangar kröfur til staða á skránni. Að því er kom fram á fundi Þingvallanefndar koma UNESCO og forsætisráðuneytið að ákvörðunum um Valhallarreitinn. Eins og áður segir íhugar Þingvallanefnd að leita til almennings með hugmyndir að uppbyggingu á Vallarreitnum. „Allt í kringum Vallhallarreitinn er vatn, sem torveldar framkvæmdir þar í kring, engin hreinlætisaðstaða er lengur á þessum stað,“ segir í fundargerðinni. Fulltrúar arkitektastofanna VA-arkitekta og Einrúm-arkitekta hafa rætt við nefndarmenn og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnarsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi vilja kynna þeim sínar hugmyndir. Kjartan segist reyndar telja að ekki eigi að byggja að nýju þar sem Hótel Valhöll stóð áður heldur eigi þar að ríkja ró og kyrrð. Þau Sigríður hafi hugmynd að sérstöku setri um hina viðburðaríku söguöld sem hefst með stofnun Alþingis á Þingvöllum árið 930 og sumir afmarki í hinn endann með biskupsvígslu Ísleifs Gissurarsonar árið 1056. „Þetta er langflottasta tímabil Íslandssögunnar,“ segir Kjartan sem kveður Sögualdarsetrið geta verið hjá fræðslumiðstöðinni á Hakinu. Þá hefur Þingvallanefnd fengið erindi frá Kristbirni Helga Björnssyni og Svövu Lóu Stefánsdóttur um uppbyggingu svæðis um búskaparhætti á þjóðveldisöld . gar@frettabladid.is
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira