Innlent

Áhyggjur af áhrifum flensu

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu.
Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu.

Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustu, SAF, segir að aðilar innan ferðaþjónustu hafi áhyggjur af svína-flensunni í heiminum og hugsanlegum áhrifum hennar á íslenska ferðaþjónustu. Allir séu á varðbergi og fylgist vel með þróuninni.

„Svona faraldur er eitt af því sem maður óttast auðvitað alltaf í ferðaþjónustu en ekki hefur komið í ljós hver framgangurinn verður. Við fylgjumst með hvað heilbrigðisstjórnvöld gera og gefa út. Annað getum við ekki gert. En auðvitað hafa allir áhyggjur af svona faraldri."- ghs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×