Innlent

Ný kolategund sögð ógna bleikjustofnum

Flatfiskur af kolaætt. Getur náð 60 sentimetra lengd. Lifir við botn frá fjöruborði niður á 100 metra dýpi.mynd/vmst
Flatfiskur af kolaætt. Getur náð 60 sentimetra lengd. Lifir við botn frá fjöruborði niður á 100 metra dýpi.mynd/vmst

Áhugamenn um stangveiði tengja minnkandi veiði á sjóbleikju á Íslandi við strandhögg nýrrar flatfisktegundar hér við land. Flundra, einnig kölluð ósakoli, fannst fyrst hér á landi árið 1999. Hún er byrjuð að hrygna hér við land og rannsóknir sýna að hún keppir við bleikjuna um vistsvæði.

Gunnar Bender, ritstjóri Stangveiðiblaðsins, hefur farið til veiða um allt land á undanförnum árum. Hann segir að samhliða landnámi flundrunnar hafi stangveiðimenn víða um land séð hversu mjög hefur dregið úr veiði á sjóbleikju, bæði í ám og vötnum þar sem útrennsli er til sjávar. „Það er alveg greinilegt hvernig þessi flatfiskur sækir á sömu svæði og sjóbleikjan. Í ám þar sem ég þekki vel til á Vesturlandi má kalla að bleikja sé horfin en á sama tíma hef ég séð torfur af flundru í ósum ánna.“ Gunnar segir að í sínum huga, og fjölmargra annarra veiðiáhugamanna, sé samband á milli landnáms flundrunnar og minnkandi fiskgengdar sjóbleikju og veiði.

Flundran hefur breiðst hratt út í vistkerfinu á undanförnum áratug. Þessi nýliði í íslenskri náttúru fannst í fyrsta skipti í ósum Ölfus-ár árið 1999. Síðla árs í fyrra bárust síðan fregnir frá Miklavatni í Borgarsveit um flundru sem veiddist þar í net; en það er fyrsta staðfesta tilfellið frá Norðurlandi.

Sigurður Guðjónsson, formaður Veiðimálastofnunar, vék að rannsóknum á landnámi flundrunnar í Hlíðarvatni í Selvogi á formannafundi Landssambands stangveiðifélaga í mars. Sagði hann ljóst að fiskurinn æti hrogn bleikjunnar á hrygningartíma og bleikjuseiði væru einnig áberandi í fæðuvali í vatninu. En stendur bleikjunni ógn af þessari fisktegund?

„Sjóbleikjan okkar hefur vissulega gefið töluvert eftir, sérstaklega sunnan lands og vestan. En það tengi ég helst við hlýindi síðustu ára,“ segir Sigurður. „Sjóbleikjan er hánorræn tegund og Ísland má kalla suðurmörkin á útbreiðslusvæði hennar. Hins vegar breiðist þessi kolategund hratt út og mun væntanlega verða komin allan hringinn innan fárra ára. Flundran nýtir sömu svæði og bleikjan og því er komin upp samkeppni um æti og pláss og eflaust er afrán í báðar áttir. “ Sigurður segir að fljótlega verði kannað hvort veiði á þessari nýju fisktegund sé möguleg. Flundr-an er eftirsóttur matfiskur í Evrópu. svavar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×