Unnur Brá hætt sem sveitarstjóri 4. maí 2009 15:52 Unnur Brá Konráðsdóttir, nýkjörin þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.
Unnur Brá Konráðsdóttir, nýkjörin þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, hefur látið af störfum sem sveitarstjóri Rangárþings eystra. Hún mun áfram sitja í sveitarstjórn. Átta sveitarstjórnarmenn náðu kjöri á Alþingi í kosningunum 25. apríl og þar af tveir sveitarstjórar, Unnur og Oddný Harðardóttir sveitarstjóri í Garði. Unnur óskaði undir lausn frá störfum á fundi sveitarstjórnar síðastliðinn fimmtudag. Hún afsalaði sér jafnframt rétti til biðlauna samkvæmt ráðningarsamningi. Beiðnin var samþykkt samhljóða. Unnur gerir ráð fyrir því að sitja áfram í sveitarstjórn samhliða starfi sínu á Alþingi. Hún hafi ákveðnum skyldum að gegna gagnvart íbúum í Rangárþingi eystra. Nýr sveitarstjóri verður ráðinn á næsta fundi sveitarstjórnar og var Elvari Eyvindssyni falið að gegna stöðunni þangað til. Hann var starfandi sveitarstjóri þegar Unnur tók sér leyfi frá störfum í kosningabaráttunni sem og í barneignafríi hennar á síðasta ári.Eðlilegt að stjórnarmyndunarviðræður taki tíma Aðspurð segir Unnur eðlilegt að yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður taki einhvern tíma. „Aftur á móti er náttúrulega til þriggja mánaða gamall stjórnarsáttmáli sem ætti að vera hægt að byggja á. Það væri gott fyrir alla ef þetta færi að taka á sig einhverja mynd." Nýja starfið leggst afar vel í Unni. Hún segir framundan séu heilmikil verkefni sem þingmenn þurfi að einhenda sér í.
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira