Frumsýnir myndband á undan Liverpool-leik 9. desember 2009 06:00 Liverpool-aðdáandi fellir tár. Myndband við lag Jóhanns G. verður frumsýnt í kvöld á Players. Lagið fjallar um forfallinn Liverpool-aðdáenda sem lendir í því að konan hans fer frá honum í miðjum Liverpool-leik. Kannski vel við hæfi enda gengi liðsins frá Bítlaborginni ekki verið upp á marga fiska.
Myndband fyrir lagið „Kveðjuorð“ af nýútkominni sólóplötu Jóhanns G. Jóhanssonar verður frumsýnt í kvöld á Players á undan leik Liverpool og Fiorentina í Meistaradeildinni. Staðsetningin er engin tilviljun því lagið fjallar um forfallinn Liverpool-aðdáanda. „Lagið er um hjón sem hafa búið saman í 35 ár,“ segir Jóhann. „Þeim hefur ekki verið barna auðið og það hefur sett svip á sambúðina. Hann er mikill aðdáandi Liverpool en konan hefur ekki haft jafn mikinn áhuga á knattspyrnunni og hann. Þegar hún er að yfirgefa hann og bera föggur sínar út í bíl er hann að horfa á leik á milli Liverpool og Glasgow Rangers. Staðan er 3-1 fyrir Liverpool en þegar konan skellir hurðinni þá skorar Glasgow. Þá lekur tár af hvarmi karlsins en það er óljóst hvort það er vegna konunnar eða leiksins.“ Það er Valdimar Leifsson kvikmyndagerðarmaður sem gerði myndbandið. Hjónin leika þau Arna Kristinsdóttir og Þorsteinn Geirharðsson og var farið víða til að taka myndbandið, meðal annars í svítuna á Grand hótel og á Players þar sem leikur Liverpool og Blackburn stóð yfir á laugardaginn. Þar var víst frekar erfitt að ná góðum skotum því leikurinn var tilþrifalaus og endaði 0-0. „Við settum okkur í samband við formann og stjórn Liverpool-klúbbsins á Íslandi og útskýrðum málið og þeir tóku okkur fagnandi. Svo eru milljón aðdáendur Liverpool úti um allan heim. Lagið verður því líka sungið á ensku og myndbandið sett á Youtube og víðar,“ segir Jóhann. En af hverju er Liverpool að keppa við Glasgow í laginu? „Þetta voru bara nöfnin sem komu þegar ég samdi textann. Ég er ekki það mikið inni í boltanum og var því lengi vel hikandi um að þessi lið gætu spilað. En svo skilst mér að þau eigi hugsanlega að spila á næsta ári. Ég ætlaði fyrst að hafa þetta leik á milli Manchester United og Liverpool en þá var mér bent á að það sé alltof stór leikur og að söguhetjan myndi örugglega fara á pöbbinn til að horfa á hann.“
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Lífið Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira