Einn starfsráðgjafi á hverja þúsund á atvinnuleysisskrá 19. nóvember 2009 06:00 Vinnumálastofnun getur engan veginn sinnt öllum sem nú eru atvinnulausir. Ráðgjöfum stofnunarinnar hefur verið fjölgað um þrjá en tíu þúsund manns hafa bæst við hóp atvinnulausra á sama tíma.
Vinnumálastofnun hefur aðeins ráðið þrjá náms- og starfsráðgjafa frá hruninu þrátt fyrir að atvinnulausum hafi fjölgað um mörg þúsund manns. Atvinnulausir í október voru tæplega þrettán þúsund en spár um þróun atvinnuleysis gera ráð fyrir að þeim fjölgi hratt á næstunni. Ráðgjafar á höfuðborgarsvæðinu voru sjö fyrir hrunið en eru nú tíu talsins. Fjöldi viðskiptavina hefur tífaldast frá því í október 2008 og eru þeir um tíu þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að þegar allt er talið starfi um tuttugu ráðgjafar á fimmtán stöðum á landinu. Þeir séu hins vegar allt of fáir. „Það má orða það sem svo að hver einasti náms- og starfsráðgjafi sem bætist við væri vel þeginn." Starfsmönnum stofnunarinnar hefur verið fjölgað um hátt í þrjátíu frá áramótum. Þeir sinna hins vegar bótaútreikningi og greiðslum til atvinnulausra en ekki svokölluðum virkniúrræðum. Gissur segir það skjóta skökku við að á meðan stofnunina sárvanti náms- og starfsráðgjafa gangi margir með slíka menntun um atvinnulausir. Hins vegar hefur stofnunin ekki fjármagn til að ráða þá í vinnu. Þórdís Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi hjá Vinnumálastofnun, segir vonlaust að tíu ráðgjafar geti sinnt öllum þeim fjölda fólks sem nú er atvinnulaust. „Við náum 800 til 1.000 einstaklingsviðtölum á mánuði sem þýðir að það tæki okkur tólf mánuði að ná til allra þeirra sem eru á skrá í dag." Þórdís bendir á að fjöldinn allur af starfshópum hafi farið yfir vandann og fyrir liggi rannsóknir sem sýni skaðsemi atvinnuleysis. „Á meðan fjárvana stjórnmálamenn stofna nefndir vantar okkur fólk og peninga til að lágmarka skaðann sem langtímaatvinnuleysi veldur," segir Þórdís. Hún segir að ef vel ætti að vera ættu að starfa fjörutíu ráðgjafar á höfuðborgarsvæðinu. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, segir ekki mögulegt að fjölga starfsfólki stofnunarinnar í takt við óskir þeirra sem þar starfa. Til þess er ekki til fjármagn. „Það er hins vegar óskastaðan og við vinnum að því með öllum ráðum að skapa það svigrúm." - shá
Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Sjá meira