Steven Tyler yfirgefur Aerosmith 9. nóvember 2009 05:00 Steven Tyler er hættur í Aerosmith og hefur hvorki talað við kóng né prest um brotthvarf sitt. Aðrir liðsmenn sveitarinnar lásu um þessa ákvörðun á netinu.
Steven Tyler, söngvari Aerosmith, yfirgaf sveitina á tónleikum í Abu Dhabi fyrir tæpum mánuði. Hann er sagður hættur öllu rokkstússi. Hljómsveitin var að spila í Abu Dhabi fyrir um mánuði síðan og eftir að ellismellirnir höfðu lokið sér af lét Tyler sig hverfa uppí flugvél og hefur hvorki talað við kóng né prest síðan þá. Gítarleikari hljómsveitarinnar og hennar helsti lagasmiður, Joe Perry, segir í samtali við Las Vegas Sun að hann búist ekki við því að Tyler snúi aftur. „Hann er hættur en ég veit ekkert meira um málið. Ég kom frá Abu Dhabi fyrir tveimur dögum og las á netinu að Tyler hyggðist segja skilið við okkur,“ segir Perry. Perry heldur því jafnframt fram að söngvarinn taki hvorki síma né svari neinum skilaboðum frá öðrum hljómsveitarmeðlimum þannig að þeir standa í raun á gati hvað þett varðar. „Hann hefur hvorki sett sig í samband við mig né hina meðlimi Aerosmith til að ræða þessa hluti. Hann er reyndar frægur fyrir svona stæla og ég hef bara lært að lifa með þeim,“ útskýrir Perry í viðtalinu við Las Vegas Sun. Og Perry segir Tyler augljóslega hafa misst áhugann, hann hafi ekki gefið sig allan í þau verkefni sem sveitin hafi verið að sinna og þetta sé niðurstaðn. „Hann var greinilega búinn að hugsa um þetta í mjög langan tíma. Mér þykir enn vænt um hann sem manneskju, allavega þá manneskju sem ég þekkti einu sinni, en mér þykir það jafnframt lélegt að láta okkur lesa um þetta á netinu.“ Perry tekur reyndar skýrt fram í viðtalinu að sveitin sé hvergi nærri hætt, með brotthvarfi Tyler geti þeir fundið nýjan og betri hljóm.-fgg
Mest lesið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Emma Roberts gengin í það heilaga Lífið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Fleiri fréttir Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Sjá meira