Óttast höfundaréttagreiðslur vegna Baugsmyndbands Valur Grettisson skrifar 19. nóvember 2009 11:05 Little Britain. „
Það eru brot úr Little Britain í þessu og því urðum að taka myndbandið út," segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdarstjóri Saga Film en kvikmyndafyrirtækið lét fjarlægja umdeilt myndband sem sýndi Baugsveislu í Monaco út af Youtube. Þar mátti meðal annars finna grínatriði með leikurunum úr Little Britain þar sem þeir voru að gantast með auðmönnum. Að sögn Kjartans eru þau atriði höfundavarin. Það mátti sem sagt ekki sýna þau opinberlega nema um það væri sérstaklega samið. Kjartan segir að ef myndbrotin séu sýnd opinberlega þá verður klausa virk um frekari greiðslur til Little Britain. Þær gætu orðið 20 falt hærri en upprunalega var kostað til. „Þannig að við kipptum þessu út í gær um leið og við fréttum af myndbandinu," segir Kjartan en það var dótturfyrirtæki Saga Film sem gerði myndbandið umdeila. Í því mátti meðal annars sjá Jón Ásgeir Jóhannesson í hlutverki flugmanns. Svo tók Tina Turner lagið auk þess sem Jón Ásgeir var dæmdur í X-Factor. Þá mátti sjá Hannes Smárason bregða fyrir. Myndbandið fór eins og eldur í sinu um veraldarvefinn og á þriðja tug þúsund manns voru búnir að sjá myndbandið í gær. Ekki er vitað hver lak myndbandinu á vefinn. Spurður hvort það komi til frekari aðgerða gegn þeim sem lak myndbandinu á netið segir Kjartan að svo verði ef Saga Film þarf að greiða fyrir birtinguna. „Þá sækjum við viðkomandi til saka," segir Kjartan Þór ákveðinn. Aðspurður hvort einhver hafi beitt hann þrýstingi um að taka myndbandið út segir hann svo ekki vera.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Innlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Erlent Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent Fleiri fréttir „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Sjá meira