Ekki trygg orka fyrir álverið 19. nóvember 2009 05:00 Framkvæmdir eru hafnar við álver í Helguvík, en óljóst er hvaðan orkan í það mun koma. Allar tölur í fréttinni eru fengnar úr gögnum Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku til Skipulagsstofnunar vegna mats á Suðvesturlínu.fréttablaðið/gva
Til að tryggja 360 þúsund tonna álver Norðuráls í Helguvík þarf 625 megawött (MW) af orku. Óljóst er hvaðan sú orka kemur, en fyrirtækið hefur samið við HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur um öflun hennar. Þar á bæ er aðeins tryggð orka fyrir tveimur af þremur áföngum álversins. Orkuveita Reykjavíkur hefur á borðinu þrennar framkvæmdir sem umhverfismati er lokið á: fimmta áfanga Hellisheiðarvirkjunar, Hverahlíðarvirkjun og Bitruvirkjun. Þar að auki hefur matsáætlun verið samþykkt fyrir virkjun við Gráuhnúka. Samtals gefa þessar virkjanir af sér 360 MW. HS Orka hefur fyrirhugað stækkun Reykjanesvirkjunar um 100 MW. Umhverfismat hefur farið fram, en hvorki er komið virkjanaleyfi frá Orkustofnun né heimild skipulagsyfirvalda í Reykjanesbæ og Grindavík. Að auki eru hugmyndir um ýmsa virkjanamöguleika, sumir hverjir mjög skammt á veg komnir, sem saman eiga að gefa 200 til 300 MW. Eftir stendur að einungis er búið að fulltryggja 460 MW af orku fyrir álverið í Helguvík, sem framkvæmdir eru þegar hafnar við. Norðurál sótti fyrst um starfsleyfi fyrir 250 þúsund tonna álveri, en orkuþörf þess nemur 435 MW. Ágúst Hafberg, hjá Norðuráli, segir að ætlunin sé að byggja álverið upp í fjórum níutíu þúsund tonna áföngum. Hagkvæmast sé fyrir fyrirtækið að tólf til fimmtán mánuðir líði á milli þess sem áfangarnir eru teknir í notkun. „Við viljum vera þokkalega vissir um að við fáum alla áfangana.“ Fyrirtækið hafi gert samning við HS Orku og Orkuveituna um orkuöflun og koma verði í ljós hversu hratt og vel gengur að ná í orkuna. Í Norðuráli séu menn bjartsýnir á að það takist. Auk álversins eru nokkrar orkufrekar framkvæmdir fyrirhugaðar á Reykjanesi, sem óljóst er hvaðan muni fá orku. Þetta eru netþjónabú í Sandgerði og annað á Keflavíkurflugvelli, kísilmálmverksmiðja í Helguvík og framleiðsluaukning álversins í Straumsvík. Samanlögð orkuþörf þeirra er 270 til 370 MW. Sé álverið reiknað með er orkuþörfin á svæðinu 895 til 995 MW. Gangi allar hugmyndir HS Orku eftir, sem allsendis er óvíst, sjáum við fram á 760 til 860 MW af orku. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Fleiri fréttir Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Sjá meira