Evrópska lánið sterk skilaboð um Ísland 2. nóvember 2009 19:06
Lánveiting Evrópska fjárfestingarbankans til Orkuveitu Reykjavíkur er gríðarlega sterkt merki út í hinn alþjóðlega fjármálaheim, að mati forystumanna orkufyrirtækjanna, og jafnvel upphafið að endurreisn íslensks efnahagslífs.Evrópski fjárfestingarbankinn gaf fyrir helgi grænt ljós á þrjátíu milljarða króna lánveitingu til Orkuveitu Reykjavíkur, sem gefur henni færi að ráðast í stækkun Hellisheiðarvirkjunar vegna raforkusölu til fyrsta áfanga Helguvíkurálvers.HS Orku er einnig ætlað að útvega orku til álversins en þar segir forstjórinn, Júlíus Jónsson, að fyrst þurfi að styrkja eiginfjárstöðu félagsins, og vonast til að samningum um það ljúki í þessari viku. Síðan þurfi HS Orka að útvega um fimmtán milljarða króna með blöndu af nýju hlutafé og lánsfé, til að fjármagna stækkun Reykjanesvirkjunar, og býst Júlíus við að það skýrist síðar í mánuðinum hvaða stefnu það mál taki. Hann segir fréttirnar af evrópska láninu til Orkuveitunnar í þessu sambandi hafa jákvæð áhrif fyrir allt Ísland.Í sama streng tekur Stefán Pétursson, fjármálastjóri Landsvirkjunar, sem leitar lánsfjár til Búðarhálsvirkjunar. Stefán segir tíðindin gríðarlega sterk, - ekki bara fyrir Orkuveituna, - heldur allt þjóðarbúið, og Evrópski fjárfestingarbankinn sendi mjög sterk merki út í hinn alþjóðalega fjármálaheim.Stjórnarformaður Orkuveitunnar, Guðlaugur Sverrisson, vonast einnig til að nú hafi orðið þáttaskil, - Ísland hafi á ný komist á kortið hjá bankastofnunum heims. Evrópski fjárfestingarbankinn sé mjög leiðandi banki um ástand mála í ríkjum sem hann láni til og vonast Guðlaugur til að þetta muni hjálpa öllum öðrum atvinnuvegum að komast af stað."Allavega erum við hjá Orkuveitunni full bjartsýni um að þetta sé upphafið að uppstiginu," segir Guðlaugur.
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Baldur til Eyja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira