Þrjár plötur seljast langbest 17. desember 2009 01:00 friðrik og jógvan Plata Friðriks Ómars og Jógvans, Vinalög, hefur selst í um níu þúsund eintökum á Íslandi og í Færeyjum.fréttablaðið/anton
Þrjár plötur eru áberandi söluhæstar það sem af er þessu ári. Plata Friðriks Ómars og Jógvans, Vinalög, er á toppnum með um níu þúsund eintök seld, þar af tvö þúsund í Færeyjum. Næst á eftir koma Jólatónleikaplata Björgvins Halldórssonar og fjórða plata Hjálma með í kringum sjö þúsund eintök hvor. Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Senu, er að vonum ánægður með viðtökurnar við Vinalaga-plötunni. „Þetta er gott dæmi um plötu sem er að virka út á brjáðsnjalla hugmynd,“ segir Eiður. Tvö þúsund eintökin í Færeyjum eru einnig ánægjuefni. „Ég er ekki sérfræðingur um færeyska markaðinn en mig grunar að þetta sé söluhæsta platan í Færeyjum fyrir jól.“ Eiður bætir við að stóri munurinn á sölunni núna og undanfarin ár sé sá að söluhæstu plöturnar í ár eru ekki jafnsöluháar og vinsælustu plöturnar í fyrra. Þá seldi Páll Óskar um fimmtán þúsund eintök af Silfursafninu, plata með minningartónleikum Vilhjálms Vilhjálmssonar seldist í um tólf þúsund eintökum og Mamma Mia fór í um ellefu þúsundum. „Fjórar vinsælustu plöturnar í fyrra náðu meira en tíu prósentum af heildarsölunni en í ár ná þær mun minna.“ Steinþór Helgi Arnsteinsson hjá Borginni er engu síður á því að plata Hjálma, IV, gæti hæglega selst í tólf þúsund eintökum. Það yrði mun meiri sala en á fyrri plötum sveitarinnar, sem hefur verið í kringum sjö þúsund eintök. „Það er eitthvað bjartara og jákvæðara yfir þessari plötu en þeirri síðustu og ég held að það sé að skila sér,“ segir Steinþór. - fb
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur Sjá meira