Leiðir á bönkum og pólitík 11. september 2009 06:00 besta tónleikabandið Bresku rokkararnir í Muse fengu NME-verðlaunin fyrr á árinu sem besta tónleikabandið. Fimmta plata sveitarinnar kemur út í næstu viku.nordicphotos/getty
Fimmta plata bresku hljómsveitarinnar Muse kemur út í næstu viku. Á tíu ára ferli sínum hefur hún sankað að sér verðlaunum, aðallega fyrir frábæra frammistöðu á tónleikum. Ný plata Muse heitir The Resistance, og er sú fyrsta frá sveitinni í þrjú ár, eða síðan Black Holes and Revelations kom út. sú plata fékk mjög góðar viðtökur og var meðal annars tilnefnd til Mercury-verðlaunanna í Bretlandi og lenti í þriðja sæti hjá tímaritinu NME yfir bestu plötur ársins. The Resistance lak á netið í gær og voru fyrstu viðbrögð netverja á þá leið að platan væri frábær. Á plötunni er rokk að hætti Muse en útsetningar þykja fjölbreyttari en áður. Sum laganna hljóma meira að segja eins og sjálfur Freddy Mercury hafi átt þar hlut að máli. Strákarnir í Muse eru þaulvanir því að taka á móti viðurkenningum því á ferli sínum hafa þeir hlotið fimm evrópsk MTV-tónlistarverðlaun, fimm Q-verðlaun, tvenn Brit-verðlaun og svo mætti lengi telja. Flest tengjast þau tónleikum sveitarinnar, sem eru mögnuð upplifun eins og þeim sem sáu tónleika tríósins í Laugardalshöll árið 2003 er eflaust enn þá í fersku minni. Muse var stofnuð í bænum Teignmouth í suðvesturhluta Englands árið 1994 af söngvaranum og píanóleikaranum Matthew Bellamy, bassaleikaranum Christopher Wolstenholme og trommaranum Dominic Howard. Í byrjun ferilsins lágu menn þeim félögum á hálsi fyrir að vera ódýr eftirlíking af Radiohead en smám saman hefur Muse vaxið ásmegin. Hún hefur fundið sinn eigin hljóm og er orðin ein þekktasta hljómsveit Bretlandseyja. Blanda sveitarinnar af prog-rokki, sígildri tónlist og elektróník hefur fallið rækilega í kramið eins og verðlaunastaflinn segir til um og ekkert lát virðist vera á vinsældunum. Forsprakkinn Bellamy segir að fyrsta smáskífulag nýju plötunnar, Uprising, sé eitt af lykillögunum. „Það er fyrsta lagið á plötunni og sýnir dálítið um hvað hún snýst, eða þennan leiða á þessum óþolandi banka- og stjórnmálamönnum sem eyðileggja allt sem þeir koma nálægt. Þeir eyða peningum í rugl og sprengja allt saman í loft upp,“ segir hann. „Þetta lag snýst um að taka af þeim völdin en skemmta sér við það í leiðinni. Að skemmta sér allan liðlangan daginn er eitthvað sem ég trúi á.“ Muse ætlar að fylgja plötunni eftir með þriggja vikna tónleikaferð um Bandaríkin sem hefst 24. september þar sem hún hitar upp fyrir risana í U2. Tónleikaferð um Evrópu með Muse í aðalhlutverki hefst síðan í Finnlandi 22. október og lýkur 4. desember á Ítalíu, þar sem The Resistance var einmitt tekin upp. freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Lífið Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Lífið Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn Lífið Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugs Lífið Hvað er Labubu og hvers vegna eru allir að missa sig yfir því? Tíska og hönnun Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Lífið Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Lífið Fleiri fréttir Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugs Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Sjá meira