Innlent

Ásmundur bankastjóri Landsbankans - staðan auglýst í haust

Ásmundur Stefánsson, settur bankastjóri Landsbankans.
Ásmundur Stefánsson, settur bankastjóri Landsbankans.
Bankaráð Landsbankans, NBI hf., ákvað í dag að fresta að auglýsa stöðu bankastjóra þar til í haust. Elín Sigfúsdóttir, núverandi bankastjóri, hefur gert bankaráðinu grein fyrir því að hún hyggist standa við fyrri ákvörðun um að láta af störfum um næstu mánaðamót eins og hún hafði áður greint frá. Bankaráð hefur falið Ásmundi Stefánssyni, núverandi formanni bankaráðs, að taka við hlutverki bankastjóra þar til staðan verður auglýst og í hana ráðið á haustmánuðum.

Haukur Halldórsson, varaformaður bankaráð,s mun taka við formennsku þess og varamaður Ásmundar, Ása Richardsdóttir, tekur sæti í bankaráðinu.

„Meginástæða frestunarinnar er sú tímabundna óvissa sem um þessar mundir ríkir í rekstrar- og viðskiptaumhverfi bankans sem torveldar framtíðarsýn og um leið markmiðssetningu til lengri tíma litið. Af hálfu bankaráðsins verður þeirri vinnu hraðað eins og auðið er við þessar aðstæður," segir í yfirlýsingu bankaráðs NBI.

Vegna ákvörðunar bankaráðs vill Elín koma eftirfarandi á framfæri: „Í ljósi tilkynningar bankaráðs er rétt að árétta að ákvörðun mín um að láta af störfum sem bankastjóri um næstu mánaðamót stendur óbreytt. Að ósk verðandi bankastjóra mun ég verða honum til aðstoðar eftir þörfum um einhvern tíma.

Ég vil þakka bankaráði gott samstarf, ítreka þakkir mínar til starfsfólks Landsbankans fyrir ánægjulegt samstarf í gegnum árin og til þeirra fjölda viðskiptavina sem ég hef átt samskipti við um leið og ég óska bankanum allrar farsældar í framtíðinni.

Með kveðju,

Elín Sigfúsdóttir

Bankastjóri"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×