Sátt við viðtalið í Marie Claire 19. desember 2009 05:00 Heilbrigð í Marie Claire Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri hjá 66° Norður, var tekin í stutt viðtal í bandaríska tískutímaritinu Marie Claire. fréttablaðið/pjetur
Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri hjá 66° Norður, var tekin í stutt viðtal við bandaríska tískutímaritið Marie Claire. Viðtalið birtist í sérstökum heilsuhluta í nýju desemberhefti tímaritsins þar sem Helga er meðal annars spurð út í mataræði sitt og líkamsrækt. „Ég veit ekki af hverju þau höfðu samband við mig. Þau voru að leita að konu á Íslandi með heilbrigðan lífsstíl og mér skildist á blaðamanninum að einhver hefði bent á mig en ég veit ekki hver það var. Þau sendu mér svo spurningalista í lok ágúst sem ég svaraði samviskusamlega,“ útskýrir Helga. Hún var jafnframt beðin um að senda blaðamanni mynd af sjálfri sér og fékk Helga með sér ljósmyndara í Bláa lónið þar sem tekin var af henni mynd í flík frá 66° Norður. Helga segist sátt við útkomuna í Marie Claire en vissi ekki af birtingu viðtalsins fyrr en vinur hennar hringdi í hana og sagði henni frá því. „Mér var sagt að viðtalið yrði væntanlega birt í desember. Það var vinur minn sem rakst fyrstur á það, hann var að blaða í gegnum tímaritið í flugi fyrir stuttu. Þeir eru fáir hér heima sem hafa séð greinina en ég er mikið á vinnufundum í Bandaríkjunum og þar hafa margir minnst á þetta við mig. Líkurnar á að menn komist í blöðin þarna úti eru svo litlar að ég held að þeim þyki þetta merkilegra en okkur hérna heima,“ segir Helga og hlær.- sm
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira