Lífið

Hundur töframannsins of ljúfur fyrir illmennið Sykes

baldur og mjöll
Baldur Brjánsson með tíkina Mjöll sem var einfaldlega alltof góð fyrir hlutverkið í Oliver! Bill Sykes, sem leikinn er af Þóri Sæmundssyni, verður því hundalaus í sýningunni.
baldur og mjöll Baldur Brjánsson með tíkina Mjöll sem var einfaldlega alltof góð fyrir hlutverkið í Oliver! Bill Sykes, sem leikinn er af Þóri Sæmundssyni, verður því hundalaus í sýningunni.

„Hún kom á eitt rennsli en bara kolféll á krúttheitum,“ segir Þórir Sæmundsson sem leikur illmennið Bill Sykes í söngleiknum Oliver! sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu á annan í jólum.

Bolabíturinn Mjöll, sem er í eigu töframannsins fyrrverandi Baldurs Brjánssonar, mun ekki leika hund Sykes í söngleiknum þrátt fyrir að samningar þess efnis höfðu náðst. Mjöll, sem er tík, þótti einfaldlega alltof góð við hliðina á Sykes og því fór sem fór. Af þessum sökum verður enginn hundur með Sykes í söngleiknum þrátt fyrir að handritið kveði á um annað. „Hún var bara ekki nógu skelfileg fyrir vonda karlinn. Hann þyrfti helst að eiga meiri varðhundatýpu en þessi tík var samt agalega sæt, feit og krumpuð,“ segir Þórir og bætir við: „Þetta er einhver bolabítsblanda í bókinni, þannig að hann er með bolabítshaus og andlit en er samt svolítið „fitt“ og snöggur. Þessi kjagaði bara yfir sviðið og var rosalega móð og más. Þetta varð einhvern veginn bara of fyndið,“ segir hann og hlær. „Svona feit og klunnaleg en samt agalega sætur hundur. Það hefði verið gaman að hafa hann en því miður. Hún fær kannski að vera í einhverju öðru þar sem eigandinn er ekki svona vondur.“

Þórir hafði beðið spenntur eftir því að leika á móti Mjöll, enda hefur hann alltaf haft mjög gaman af hundum. „Ég var farinn að hlakka til. Ég ætlaði að sjá um hundinn í leikhúsinu og gefa honum að éta. En hún féll bara á þessu greyið. Spenarnir á henni sáust líka svolítið vel og það er algjörlega ekki málið því þessi hundur á að vera feitur boli. Hún var eiginlega svona nett dagdrottning.“

Baldur Brjánsson fylgdist með rennslinu þegar Mjöll átti að leika á móti Þóri og sá undir eins að hlutirnir voru ekki að ganga upp. „Bill Sykes er náttúrulega groddamenni og hún virkaði bara svo sæt og ljúf við hliðina á honum,“ segir Baldur. „Ég sá alveg um leið að þetta passaði ekki. Mér fannst hún vera eins og poodle-hundur hjá honum.“

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.