Búa til Pringles-auglýsingu í höfuðborg Argentínu 28. nóvember 2009 04:00 á leið til argentínu Samúel Bjarki og Gunnar Páll ætla að taka upp Pringles-auglýsingu í Argentínu.
Samúel Bjarki Pétursson og Gunnar Páll Ólafsson ætla að leikstýra Pringles-auglýsingu í Argentínu. Um eitt hundrað manns starfa við verkefnið. „Það verður rosafínt að fara í þrjátíu stiga sumar í Argentínu, sérstaklega þegar það er byrjað að snjóa hérna,“ segir Samúel Bjarki Pétursson auglýsingaleikstjóri. Næsta verkefni hans og félaga hans, Gunnars Páls Ólafssonar, verður af stærri gerðinni því eftir helgi fljúga þeir til Buenos Aires til að taka upp nýja sjónvarpsauglýsingu fyrir Pringles-snakkframleiðandann. Öllu verður tjaldað til við framleiðsluna því um eitt hundrað manns munu starfa við auglýsinguna. Um alheimsherferð er að ræða og hefjast sýningar á auglýsingunni í janúar. „Þetta kom til í gegnum fyrirtæki sem við erum hjá í Bandaríkjunum, Crossroads. Þeir eru að vinna svolítið fyrir fyrirtækið Procter & Gamble sem framleiðir nánast aðra hverja snyrtivöru og matvöru í heiminum. Við kepptum á móti fjölmörgum leikstjórum og unnum þá baráttu,“ segir hann en vill ekkert gefa upp um launaávísunina sem fylgdi með í kaupunum. Procter & Gamble er með höfuðstöðvar í Ohio í Bandaríkjunum. Á síðasta ári var fyrirtækið það áttunda stærsta í heiminum ef tekið er tillit til markaðssvæðisins sem það nær til og það fjórtánda stærsta í Bandaríkjunum hvað hagnað varðar. Árið 2007 eyddi það mest allra fyrirtækja í auglýsingar í Bandaríkjunum og tvöfalt meira en General Motors. Það er því ljóst að mikið er undir hjá Samúel Bjarka og Gunnari Páli í Argentínu og verður fróðlegt að fylgjast með útkomunni. Þeir félagar hafa haft nóg að gera undanfarin ár í auglýsingabransanum. Nýverið komu þeir heim frá Rúmeníu þar sem þeir tóku upp bjórauglýsingu og hérna heima gerðu þeir Sex vina-auglýsingarnar fyrir Símann. Fyrr á árinu fengu þeir hin virtu Telly Awards-verðlaun fyrir auglýsingu sem þeir gerðu fyrir raftækjaframleiðandann Samsung. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira