Evra: Ef stuðningsmenn okkar púa á Tevez þá púa ég líka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2009 14:30 Vinirnir Patrice Evra , Carlos Tevez og Park Ji-sung. Mynd/AFP
Patrice Evra og Carlos Tevez voru miklir vinir þegar sá síðarnefndi lék með Manchester United og þrátt fyrir að það hafi ekkert breyst utan vallar er franski bakvörðurinn alveg tilbúinn að taka þátt í púinu á Tevez verði Argentínumaðurinn orðinn góður af meiðslunum fyrir Manchester-slaginn á sunnudaginn. „Ég hef verið að stríða honum á því hvernig móttökur hann muni fá. Ég veit ekki hvort stuðningsmenn okkar munu púa á hann eða klappa fyrir honum. Hann stóð sig frábærlega hjá Manchester United og bar virðingu fyrir treyjunni, Það meta stuðningsmennirnir," segir Evra en bætti svo við: „Ef stuðningsmenn okkar púa á Tevez þá púa ég líka," sagði Evra örugglega meira í gríni en alvöru í þessu viðtali við breska blaðið Independent. Patrice Evra og Carlos Tevez mynduðu vinahóp innan Manchester United ásamt Park Ji-sung en þeir þrír eyddu miklum tíma saman utan vallar. „Ég fékk skilaboð frá honum þar sem hann sagði að þeir myndu vinna leikinn en ég er ekki svo viss um það. Ég vona að hann verði orðinn góður og geti spilað. Það yrði sérstakt að spila á móti honum af því hann er svo góður vinur en hann er leikmaður City og við megum alls ekki leyfa honum að vinna Manchester United," sagði Evra. „Þessi leikur á móti þeim er sérstakur. Við höfum aldrei mætt þeim áður þegar þeir hafa verið í hópi efstu liðanna. Þeir hafa enn ekki tapað leik svo þeir koma á Old Trafford fullir sjálfstrausts. Þetta verður frábær leikur og alvöru verkefni. Ég vina að við verðum tilbúnir í þetta," sagði Evra.
Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira