Vinkonur búa til Heilaspuna 1. desember 2009 07:30 Vinkonurnar Sesselja G. Vilhjálmsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir hafa samið borðspilið Heilaspuni. fréttablaðið/gva
Vinkonurnar Sesselja G. Vilhjálmsdóttir og Valgerður Halldórsdóttir senda í vikunni frá sér borðspilið Heilaspuni. Spilið er byggt á íslenskri, tungu, þjóðlífi, menningu og sögu. „Þetta er keppni í hver er bestur í að bulla og vera skapandi,“ segja þær. „Ef þú ert í skemmtilegum hópi getur þetta verið mjög fyndið spil.“ Alls eru 2.500 spurningar í spilinu í fimm flokkum: Orð, slangur, atburðir, bækur og heilahristingur. Leikmenn semja líkleg svör við ýmsum spurningum í þeim tilgangi að plata meðspilara sína og fá þá til að giska á að svör þeirra séu þau réttu. Spilið er í anda eldra spils, Fimbulfambs, en að sögn þeirra stallsystra, töluvert fjölbreyttara. Sesselja og Valgerður ákváðu að búa spilið til í sumar þegar þær voru báðar án atvinnu. „Við höfum alltaf haft gaman af alls konar spilum og okkur fannst vanta svona spil á Íslandi. Maður þarf ekki að vera klárasti maðurinn á landinu til að spila það heldur bara að vera frjór.“ Þær fóru á Þjóðarbókhlöðuna til að semja spurningarnar og tók verkið aðeins tvær til þrjár vikur. „Við erum örugglega búnar að lesa allar orðabækur Íslandssögunnar,“ segja þær og hlæja. Anna Rakel Róbertsdóttir var grafískur hönnuður spilsins og Bobby Breiðholt teiknaði myndina framan á spilinu þar sem margar af þekktustu persónum Íslandssögunnar koma við sögu. -fb
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira