Aðgerðasinnar ekki í ofbeldi 13. febrúar 2009 05:45 Mótmælendur verja lögreglu. Aðfaranótt fimmtudagsins 22. janúar beitti lögreglan táragasi á mótmælendur en „fíklar og þekktir ofbeldismenn“ höfðu áður kastað í hana grjóti. Mótmælendur vörðu síðan lögregluna fyrir grjótkasti. fréttablaðið/vilhelm
Ný tegund mótmæla, sem einkennist af beinum aðgerðum, er komin til að vera, segir Gísli Jökull Gíslason, lögreglumaður og ritstjóri Lögreglublaðsins. Þau eigi rætur að rekja til þess þegar Kárahnjúkavirkjun var mótmælt árið 2005 og síðar. „Þá fengum við hóp sem ætlaði gagngert að stöðva framkvæmdir með beinum aðgerðum, þar sem eindreginn vilji kom fram til að hafa áhrif á gang mála,“ segir hann og stillir þessu upp á móti hefðbundnari mótmælum á Íslandi, svo sem mótmælastöðu við sendiráð. Gísli Jökull vísar hér til þess þegar hópur erlendra náttúruverndarsinna kom til landsins til að mótmæla framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun. Þessi hópur „atvinnumótmælenda“ blandaðist íslenskum mótmælendum. Á hverju ári hittist fólkið svo í aðgerðabúðum að sumri til og Gísli segir að í hvert skipti hafi hlutfall Íslendinga í hópnum aukist jafnt og þétt. „Íslenski Saving Iceland-hópurinn varð síðan mjög áberandi í fyrstu mótmælum Radda fólksins á Austurvelli í október. Þessi hópur var ekki kominn til að hlusta á ræðurnar heldur fór að Alþingishúsinu og sýndi vanþóknun sína með einhverjum hætti,“ segir Gísli. Aðgerðasinnar vilji vissulega láta hafa mikið fyrir sér, en þeir séu ekki þekktir fyrir að skemma og eyðileggja: „Það voru fíklar og þekktir ofbeldismenn sem köstuðu grjótinu. Þegar mótmælendurnir vörðu okkur lögreglumenn við Stjórnarráðið [22. janúar] og stöðvuðu grjótkastið, sá ég að sá sem stóð mér næst [meðal verjenda] var þekkt andlit úr Saving Iceland,“ segir hann. Íslenskt ofbeldi gegn lögreglu í mótmælum sé svipað og í löndunum í kring: „Það er stundað af auðnuleysingjum sem fara þangað þar sem er slagur, gagngert til að skemma og meiða,“ segir Gísli. Sturla Böðvarsson, fyrrum forseti Alþingis, sagði nýlega á þingi að mikil umskipti hefðu orðið í íslenskum stjórnmálum og vísaði til mótmæla við þinghúsið. Sagðist Sturla vona að þau boðuðu ekki nýja siði í stjórnmálum. Þá væri voðinn vís.- kóþ
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Brotlenti í djúpu gili Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Fleiri fréttir Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Sjá meira