Enski boltinn

United getur andað léttar útaf Owen

Ómar Þorgeirsson skrifar
Michael Owen.
Michael Owen. Nordic photos/AFP

Framherjinn Michael Owen hjá Englandsmeisturum Manchester United varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla eftir tuttugu mínútna leik gegn Wolfsburg í Meistaradeildinni á dögunum.

Í fyrstu var haldið að hinn meiðslum hrjáði Owen myndi verða frá vegna nárameiðsla í þrjár til fjórar vikur en knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá United hefur nú staðfest að Owen gæti verið klár í slaginn að nýju eftir rúmar tvær vikur.

„Við erum ánægðir með að heyra að meiðsli Owen eru ekki jafn alvarleg og talið var í fyrstu. Miðað við meiðslasögu hans til þessa þá reynum við að taka enga áhættu með hann. Hann missti reyndar af æfingu í vikunni fyrir leikinn og kannski hefðum við átt að hvíla hann gegn Wolfsburg," sagði Ferguson á blaðamannafundi í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×