Innlent

Unglingur kýldi lögregluþjón

Lögreglumenn við skyldustörf.
Lögreglumenn við skyldustörf.

Sextán ára piltur sló lögreglumann í andlitið fyrir utan heimili á Borgarnesi í ágúst á síðasta ári. Lögreglumaðurinn var við skyldustörf þegar pilturinn réðst á hann og sló af afli í andlitið hans.

Lögreglumaðurinn var með gleraugu en þau brotnuðu við höggið. Að auki hlaut hann bólgu við gagnauga.

Pilturinn játaði skýlaust brot sitt fyrir Héraðsdómi Vesturlands.

Það var talið honum til tekna og því var refsingu frestað og látin niður falla haldi hann almennt skilorð í tvö ár. Þá er honum gert að bæta lögreglumanninum gleraugun og þarf því að borga fjörtíu þúsund krónur auk 100 þúsund krónur í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×