Skerðing á fæðingarorlofi bitnar frekar á körlunum 26. nóvember 2009 04:15 Við fæðingardeild LSH Fjölmargir hafa brugðist við og mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði fæðingarorlofsgreiðslna. Þar á meðal er Félagsráðgjafafélag Íslands sem bendir á að börn gæti ekki hagsmuna sinna sjálf og því sé ábyrgð stjórnvalda, fjölmiðla og samfélagsins alls mikil þegar komi að málefnum sem þau varði. Tryggja eigi börnum samveru við báða foreldra. Fréttablaðið/Vilhelm
Fyrirhuguð skerðing á fæðingarorlofsgreiðslum gengur gegn markmiðum laganna um slíkar greiðslur, að mati Kristínar Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. Hún bendir á að markmið laganna sé annars vegar að tryggja börnum aðgengi að foreldrum sínum og hins vegar að jafna stöðuna á vinnumarkaði. „Svo bitnar þetta meira á körlum en konum, því breytingarnar gera karlmönnum erfiðara fyrir að taka fæðingarorlof,“ segir Kristín. Hún segir mjög bagalegt að grípa þurfi til ráðstafana sem þessara. „Auðvitað er mjög mikil hætta á því að því lægra sem farið er með þakið því erfiðara eigi fólk með að taka fæðingarorlof og þá sérstaklega karlmenn. Eins og við vitum hafa þeir töluvert hærri meðallaun en konur og verða þar af leiðandi fyrir meiri tekjuskerðingu með orlofstökunni.“ Kristín segir að verði ekki hægt að snúa aftur til fyrri hátta fljótlega sé kerfið farið sem hér hafi verið byggt upp. „Sem væri synd því þetta fyrirkomulag hefur vakið mjög mikla athygli erlendis og margar þjóðir sem velta því fyrir sér að byggja upp svipað kerfi.“ Hún segir þó jákvætt að ekki sé hróflað við tímalengd orlofsins, en jafnljóst sé að eftir því sem tekjuþakið sé lægra því erfiðara sé að fá þá sem eru með meðallaun og þar yfir til að taka fullt fæðingarorlof. „Og það kemur náttúrulega niður á börnunum og auðvitað þeim markmiðum sem ætlunin var að ná með lögunum.“ Núverandi kerfi hefur varað í um fimm ára skeið, en hefur, að sögn Kristínar, á þeim tíma hvorki haft áhrif á launamun kynjanna né á verkaskiptingu innan heimilanna. Erfitt sé hins vegar að segja til um hvort það séu breytingar sem hefðu tekið lengri tíma. „En þetta hefur jafnað stöðu kynjanna á vinnumarkaði.“ Þá segir Kristín að forvitnilegt verði að sjá áhrifin á barnsfæðingar. „Ég hefði haldið að mjög fljótlega færi að draga úr þeim. Það stefnir reyndar í met á þessu ári, en það tel ég kannski tengjast því að fólk hafi ekki verið viðbúið kreppunni eða trúað að hún yrði langvarandi. En ég held að fólk sem virkilega hugsar sinn gang hljóti að fresta barneignum. Það gerðist til dæmis hér á landi í heimskreppunni miklu og þannig fyndist manni eðlilegra að draga myndi úr álagi á kerfið.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi Innlent Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Innlent Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Innlent Fleiri fréttir Kölluð út á efsta forgangi þegar tveir féllu útbyrðis Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Sjá meira