Sparnaður hjá HÍ jafngildir rekstri Kennaraháskólans 26. nóvember 2009 06:00
Háskóli Íslands verður samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2010 rekinn fyrir jafngildi þeirrar fjárveitingar sem skólinn fékk fyrir sameiningu hans við Kennaraháskóla Íslands. Í byrjun árs 2007 var undirritaður samningur við menntamálaráðuneytið um fjármögnun metnaðarfullrar stefnu HÍ. Hefur sú stefna kristallast í markmiðinu að koma skólanum í hóp hundrað bestu háskóla heims. Samningurinn er afkastatengdur og átti að tryggja skólanum það viðbótarfé sem hann þarfnast til að geta sinnt hlutverki sínu sem menntastofnun í fremstu röð. Samningnum hefur nú verið frestað. Á þessu ári sparar það ríkinu 720 milljónir króna. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, segir að frestun samningsins sé áfall ekki síst þar sem skólinn hefur staðið við öll áfangamarkmið sem í samningnum eru. „Hvað kennsluna varðar þá vorum við hvött til að opna dyr skólans um áramótin. Fjölgaði í skólanum um fjórtán hundruð nemendur sem margir höfðu þá misst vinnuna. Nýnemum í haust fjölgaði um tuttugu prósent á milli ára. Skólinn er að stækka gífurlega á meðan við þurfum að mæta miklum niðurskurði. Við leggjum mesta áherslu á að nemendur skólans fái þá kennslu sem þeim ber en það eykur byrðar á herðum kennara sem lækka í launum. Hættan er sú að okkur fatist flugið í rannsóknum og af því hef ég verulegar áhyggjur." Kristín hefur jafnframt áhyggjur af samstarfssamningum við erlenda háskóla. „Við höfum lagt mikið upp úr því að okkar nemendur geti tekið hluta af sínu námi við virtar erlendar stofnanir án þess að borga há skólagjöld. Framlag okkar í þessu samstarfi eru vísindi og rannsóknir. Með slíkum samningum teljum við okkur vera að stækka íslenska menntakerfið án útgjalda fyrir samfélagið. Þetta samstarf er í hættu." Niðurskurður innan skólans er rúmur milljarður króna á þessu ári. Útfærsla niðurskurðar fyrir árið 2010 er í vinnslu og gerir ráð fyrir fjögur til sex prósent lækkunum á laun yfir 350 þúsundum króna. Sameiginleg útgjöld og útgjöld fræðasviða verða lækkuð um fjögur prósent. Þessar forsendur ásamt sparnaði ársins 2009 jafngilda því að rekstur Kennaraháskólans fyrir sameiningu við HÍ hafi verið þurrkaður út úr bókum ríkisins. Sú skylda er því lögð á herðar stjórnenda að fjármagna rekstur menntavísindasviðs HÍ sem er að stofni til gamli Kennaraháskólinn. Ríkisframlög til Kennaraháskólans á síðasta rekstrarári hans sem sjálfstæðs skóla var um 1,5 milljarðar króna. - shá
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Fleiri fréttir Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Sjá meira