Innlent

Samherji greiðir starfsmönnum 100 þúsund króna launauppbót

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Skip á vegum Samherja.
Skip á vegum Samherja.
Samherji hefur ákveðið að greiða 300 starfsmönnum sínum í landi 100 þúsund króna launauppbót, miðað við fullt starf. Uppbótin verður greidd með launum núna um mánaðamótin og bætist við umsamda desemberuppbót sem greidd er á sama tíma.

Í frétt á vef Samherja vegna málsins kemur fram að þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi hafi rekstur Samherja gengið vel á árinu. Starfsfólk félagsins hafi lagt sig fram í störfum sínum og um að þjónusta kröfuharða viðskiptavini félagsins eftir bestu getu. Fyrir það vilji Samherji þakka með þessari launauppbót núna í aðdraganda jólanna.

„Þetta er í annað skiptið á árinu sem Samherji greiðir starfsfólki sínu launauppbót umfram kjarasamninga, en það var einnig gert síðastliðið vor. Nú fer í hönd einn útgjaldamesti mánuður ársins hjá flestum fjölskyldum og þess vegna ákváðum við nú að umbuna starfsfólki okkar fyrir frábært starf á árinu," segir Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, á vef fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×