Vestmannaeyingar skora á Steingrím 15. febrúar 2009 15:27 Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð Vestmannaeyja kom saman í dag á aukafundi til að fjalla um loðnuveiðar. Ráðið skorar á Steingrím J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að gefa tafarlaust út 30 til 50 þúsundtonna upphafskvóta í loðnu. Í greinargerð segir að Vestmannaeyjabær hafi fullan skilning á mikilvægi þess að sjávarauðlindin sé umgengin af virðingu. Bærinn hafi með ráðum og dáð staðið við bakið á ábyrgri fiskveiðistjórnun. 4-6 milljarða gjaldeyristekjur ,,Hinsvegar liggur nú fyrir að ástandið í efnahagslífi þjóðarinnar kallar á að einskis sé látið ófreistað í að skapa þjóðarbúinu tekjur. Á næstu klukkutímum og sólarhringum er loðnan verðmætust enda færi hvert kíló til manneldis af því sem nú veiðist. Varlega áætlað má gera ráð fyrir að 30 til 50 þúsundtonna upphafskvóti myndi skapa þjóðarbúinu gjaldeyristekjur upp á 4 til 6 milljarða og hleypa miklu lífi í atvinnulíf þjóðarinnar. Þá er einnig miklivægt að hafa hugfast að fyrstu tonnin eru að öllu jöfnu þau verðmætustu." Ábyrgur fyrir efnahag þúsunda heimila Sjávarútvegsráðherra fer með ákvörðunarvaldið fyrir hönd ríkisstjórnar hvað ákvörðun þessa varðar, segir í greinargerð bæjarráðs. Hann sé þannig ábyrgur fyrir atvinnuástandi og efnahag þúsunda íslenskra heimila. ,,Í núverandi ástandi kann að þurfa að seinka eitthvað uppbyggingu nytjastofna því nú þarf að veiða og vinna eins mikið og stofnar þola. Álit sjómanna og útgerða liggja fyrir og eru þær nær einróma hvað varðar þá skoðun að óhætt sé að gefa út lágmarks upphafskvóta í loðnu."
Tengdar fréttir Ríkisstjórnin láti af mannaveiðum - vilja loðnuveiðar strax Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur. Svo segir í ályktun stjórnarfundur Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum sem haldinn var í gær þar sem skorað er á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax. Þar segir að fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hafi ekki hundsvit á sjávarútvegi sé hneisa fyrir Ísland. Mörg hundruð milljónir séu að tapast á hverjum degi "meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti. 15. febrúar 2009 10:04 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Fleiri fréttir Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Sjá meira
Ríkisstjórnin láti af mannaveiðum - vilja loðnuveiðar strax Íslenskt þjóðfélag er á hausnum í orðsins fyllstu merkingu og það eina sem Ríkisstjórn Íslands hefur hugann við er allt annað en sjávarútvegur. Svo segir í ályktun stjórnarfundur Skipstjóra og- stýrimannafélagsins Verðanda í Vestmannaeyjum sem haldinn var í gær þar sem skorað er á ríkisstjórnina að láta hefja loðnuveiðar strax. Þar segir að fullmönnuð ríkisstjórn af fólki sem hafi ekki hundsvit á sjávarútvegi sé hneisa fyrir Ísland. Mörg hundruð milljónir séu að tapast á hverjum degi "meðan þið sem stjórnið landinu okkar vitið ekki að sjávarútvegurinn er það eina sem getur bjargað þessari þjóð frá gjaldþroti. 15. febrúar 2009 10:04