Naktir kappar slá í gegn á Ísafirði 19. desember 2009 06:00 Á adamsklæðunum Fótboltamennirnir fyrir vestan eru ekki feimnir og varð að vísa leikmönnum frá nektarmyndatökunni frekar en hitt.
Fótboltakapparnir í Boltafélagi Ísafjarðar fækkuðu fötum á dögunum í fjáröflunarskyni. Ljósmyndarinn Spessi tók af þeim myndir sem verða gefnar út á dagatali á næstunni. Formaðurinn er ánægður með útkomuna og hefur ekki ennþá heyrt gagnrýnisraddir. „Þetta fór hraðar af stað en við bjuggumst við. Það eru strax farnar að berast pantanir að utan - það var að skríða í hús pöntun af höfuðborgarsvæðinu," segir Svavar Þór Guðmundsson, formaður Boltafélags Ísafjarðar. Strákarnir í meistaraflokki og 2. flokki Boltafélags Ísafjarðar hafa slegist í hóp þeirra sem fækka fötum í fjáröflunarskyni. Afraksturinn verður dagatal, sem er stórglæsilegt að mati formannsins. „Þeir eru ekki bara góðir í fótbolta, heldur fjallmyndarlegir líka," segir Svavar. „Það varð að gera eitthvað úr þessu. Það var borið undir þá hvernig þeim litist á að striplast fyrir framan myndavélar og lögð áhersla á að þeir sem vildu ekki vera með þyrftu ekki að gera það. Svo varð úr að hver einasti kjaftur vildi vera með - og rétt rúmlega það. Það þurfti frekar að vísa frá heldur en hitt. Svo var gengið í að finna rétta staðinn og rétta ljósmyndarann - sem var Spessi þegar upp var staðið." Voru menn feimnir þegar á hólminn var komið? „Nei, alls ekki. Það var fámennur hópur sem var við þetta, eins og gefur að skilja, og þetta gekk mjög vel. Miklu betur en menn áttu von á." Dagatalið er væntanlegt á næstunni og verður selt á hóflegu verði fyrir vestan. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Lífið Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Lífið Britney farin í meðferð Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira