Framfærsla námsmanna hækkar um 20 prósent 9. september 2009 13:44 Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. Mynd/Arnþór Birkisson
Grunnframfærsla Lánasjóðs íslenskra námsmanna hækkar um 20% og hækkar hún í 120 þúsund krónur á mánuði. Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita lánasjóðnum einn milljarð króna á fjárlögum ársins 2010 til þess að hækka framfærslugrunn sjóðsins. Ýmsar breytingar verða jafnframt gerðar á samspili námslána og atvinnuleysisbóta og er markmiðið að hvetja fólk til náms sem annars væri á atvinnuleysisbótum. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, og Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, kynntu breytingarnar á blaðamannafund í dag. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir breytingarnar mikilvægt skref að því markmiði að reyna að beina fólki í nám ekki síst að auðvelda atvinnulausum að feta menntaveginn. Árni Páll tekur í svipaðan streng og bendir á að með því að draga úr muninum á milli bóta og grunnframfærslu er ekki eins freistandi að vera á bótum. „Markmiðið er að tengja betur saman þessi kerfi og auðvelda fólki að bæta við sig í menntun á þessum erfiðu tímum. Þannig stöndum við eftir sem kröftugri þjóð og betur í stakk búin til þess að takast á við framtíðina," segir Árni Páll. 15 þúsund króna munur á bótum og lánum Áætlað er að framfærslugrunnur Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði um 120 þúsund krónur á mánuði í stað um 100 þúsund króna nú. Atvinnuleysisbætur að frádregnum skatti eru nú um 135.000 krónur á mánuði. Reiknað er með að fyrirhugaðar breytingar leiði til þess að strax á haustmisseri skólanna sem nú er að hefjast muni um 500 einstaklingar fara af atvinnuleysisbótum í nám og að þeir verði á bilinu 700 til 900 á vormisseri. Slíkt myndi draga úr útgjöldum Atvinnuleysistryggingasjóðs sem nemur um 700 til 900 milljónum króna á ársgrundvelli.
Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Sjá meira