Afskipti ríkisins aukast 18. september 2009 03:30 Fjöldi fyrirtækja hefur átt í erfiðleikum, ekki síst á byggingamarkaðnum. Breyta á lögum til að auðvelda nauðasamninga.fréttablaðið/anton
Lög um Bankasýslu ríkisins og stofnun opinbers hlutafélags þýða að afskipti ríkisins af atvinnulífi munu aukast. Bankasýslan tekur til starfa á næstu dögum og verið er að skipa í stjórn. Í dómsmálaráðuneyti er unnið að lagabreytingum til að fjölga nauðungarsamningum á kostnað gjaldþrota. Bankasýsla ríkisins tekur til starfa í næstu viku. Hún hefur það hlutverk að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, en það hefur ágerst eftir hrunið að ríkið eigi í fjármálafyrirtækjum. Bankasýslan heyrir undir fjármálaráðherra og hefur hann útnefnt þau Þorstein Þorsteinsson rekstrarhagfræðing, Sonju Maríu Hreiðarsdóttur lögfræðing og Sigríði B. Stefánsdóttur hagfræðing í stjórnina og Guðrún Johnsen lögfræðing er til vara. Viðskiptanefnd kemur á framfæri sínum sjónarmiðum um útnefninguna, en hún fundar eftir helgi. Þá er það Bankasýslunnar að hafa eftirlit með eigendastefnu ríkisins og gera tillögur til fjármálaráðherra um frekari fjármögnun fyrirtækjanna. Aukinheldur sér Bankasýslan um undirbúning sölu á eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjunum. Bankasýslan átti að taka strax til starfa og gefa fjármálaráðherra ítarlega skýrslu um starfsemi sína í fyrsta sinn 1. nóvember. Samkvæmt lögum á að leggja Bankasýsluna niður fimm árum eftir að hún er sett á fót.EignaumsýslufélagHANNES G. SIGURÐSSONAlþingi samþykkti í sumar stofnun opinbers hlutafélags til að stuðla að endurskipulagningu rekstrarhæfra atvinnufyrirtækja. Félagið, sem kallað hefur verið eignaumsýslufélag, á að vera fjármálafyrirtækjum til aðstoðar við að endurskipuleggja skuldsett atvinnufyrirtæki. Það hefur heimild til að kaupa lánskröfur og gerast hluthafi í fyrirtækjum við sérstakar aðstæður. Hlutverk félagsins er annars að aðstoða við tiltekt í rekstrinum, leggja niður einingar sem eru óhagkvæmar, sameina fyrirtæki eða gera hvað það sem metið er þarft til að hægt sé að reka fyrirtækin áfram með hagkvæmum hætti og forðast gjaldþrot. Þá er kvöð á félaginu að ráðstafa þeim eignum sem það kaupir eins fljótt og markaðsaðstæður leyfa með gagnsæjum hætti. Eignaumsýslufélagið og Bankasýslan eru því hugsuð sem skammtímaúrræði við sérstakar aðstæður. Heimild er fyrir því að færa eignaumsýslufélagið undir Bankasýsluna. Frumvarpið um eignaumsýslufélagið tók miklum breytingum í meðförum Alþingis og gengu þær flestar í þá átt að auka eftirlitshlutverk þingsins. Þingmenn hafa þannig aðgang að upplýsingum um þau fyrirtæki sem félagið tekur yfir. Atvinnulífið ósáttSamtök atvinnulífsins gerðu fjölmargar athugasemdir við frumvörpin og töldu stofnun, bæði Bankasýslunnar og umsýslufélagsins, óþarfa. Með Bankasýslunni væri verið að seilast inn á hlutverk bankaráða og í raun verið að búa til nokkurs konar yfirbankaráð. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna, segir að upplýsingagjöf eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi um eignaumsýslufélagið, geti verið skaðleg fyrirtækjum á samkeppnismarkaði. Mjög mikilvægt væri að auka traust á fyrirtækjum og það væri hlutverk stjórnenda þeirra, meðal annars með auknum upplýsingum. Hins vegar væri hægt að fara yfir línu í þeim efnum sem gæti orðið skaðleg fyrirtækjunum. Fréttablaðið hefur heimild fyrir því að sú óánægja sé nokkuð almenn á meðal atvinnurekenda sem telji upplýsingaflæðið hamandi. Sumir tala þannig að betra sé að setja fyrirtækið í gjaldþrot en að fara þessa leið. Þá sagði Hannes að samtökin hefðu efasemdir um að ríkisvaldið ætti að reka stærri fyrirtæki í langan tíma. „Eðlilegast væri að reyna að koma þeim aftur í hendur nýrra eigenda sem reyndu að hámarka virði þeirra.“
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira