Enski boltinn

Manchester United hefur áhuga á Cahill

Ómar Þorgeirsson skrifar
Gary Cahill.
Gary Cahill. Nordic photos/AFP

Samkvæmt heimildum The Sun eru Englandsmeistarar Manchester United áhugasamir um að fá varnarmanninn Gary Cahill frá Bolton.

Knattspyrnustjórinn Gary Megson hjá Bolton hefur reyndar heitið því að hann muni gera allt til þess að halda Cahill í röðum Bolton en gæti þurft að lúta í lægra haldi gegn stórliðunum sem eru orðuð við varnarmanninn efnilega.

Manchester United, AC Milan og Juventus eru orðuð við Cahill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×