Mynda mannlegt friðarmerki 29. september 2009 00:30 Ungverskur friður Um 3.500 manns hittust í Búdapest í fyrra til að mynda þetta friðarmerki. Á föstudag á að endurtaka leikinn, á Klambratúni. Kyndlar verða á staðnum. Mynd/heimsganga.is
Til stendur að mynda mannlegt risavaxið friðarmerki á Klambratúni á föstudaginn. Þann dag, 2. október, er friðardagur Sameinuðu þjóðanna haldinn hátíðlegur um allan heim, en 2. október er einnig fæðingardagur friðarleiðtogans indverska Mahatma Gandhi. „Við ætlum að lyfta kyndlum á loft og mynda friðarmerki. Þetta er táknræn aðgerð um djúpstæða þrá eftir samfélagi án ofbeldis,“ segir Helga R. Óskarsdóttir húmanisti. Skipulagshópur Heimsgöngunnar, ásamt Rauða krossinum, Sambandi íslenskra framhaldsskólanema, Samtökum hernaðarandstæðinga, Öryrkjabandalaginu og fleiri fjöldasamtökum, standa að göngunni. Á degi friðar hefst heimsganga frá Nýja-Sjálandi og á að ganga heiminn þveran og endilangan á þremur mánuðum, eða til 2. janúar, þegar henni lýkur í Andesfjöllum í Argentínu. Göngufólkið fer í gegnum hátt í hundrað lönd og ræðir við stjórnmálamenn og aðra leiðtoga í hverju landi. Helstu kröfur göngufólksins eru að kjarnorkuvopnum verði útrýmt og að innrásarherir hverfi frá herteknum svæðum. Friðarmerkið á Klambratúni á að mynda klukkan 20 á föstudag, en um morguninn verður mínútuþögn í mörgum grunnskólum landsins. - kóþ
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Fleiri fréttir „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Sjá meira