Fyrirtæki vega þungt í erlendum skuldum 4. nóvember 2009 06:00 Frá fyrri fundi AGS Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS á Íslandi, og Marks Flanagan, yfirmaður sendinefndar AGS á Íslandi, sitja fyrir svörum á blaðamannafundi. Sendinefndin skilaði í gær áfangaskýrslu sinni eftir dagstöf til að Seðlabanki Íslands gæti farið betur yfir upplýsingar sem fram áttu að koma. Fréttablaðið/Stefán
Erlendar skuldir þjóðarbúsins eru hærri en áður hafði verið talið en þó ekki úr takti við það sem gerist í öðrum þróuðum ríkjum. Þetta kemur fram í áfangaskýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) vegna fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og birt var í gær. Skuldabyrðin sem bæst hefur við frá síðasta mati nemur 92 prósentum af áætlaðri þjóðarframleiðslu þessa árs, eða sem nemur 10,9 milljörðum dollara, eða um 125 milljörðum króna. Að mati skýrsluhöfunda þýði þetta að skuldirnar nái hámarki í 310 prósentum af þjóðarframleiðslu á árinu, eða nálægt 37,1 milljarði dollara, eða 4.600 milljörðum króna. Aukningin er til komin vegna endurmats á skuldbindingum hins opinbera og bankanna og nýrra upplýsinga um skuldbindingar íslenskra stórfyrirtækja, að því er fram kemur í skýrslunni. Í umræðum Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndarinnar, og Franeks Rozwadowski, fulltrúa sjóðsins hér á landi, um áfangaskýrsluna og einnig voru birtar í gær, kemur fram að þótt skuldir þjóðarinnar séu miklar þá séu þær ekki óyfirstíganlegar. Í inngangsorðum sagði Flanagan að skuldir þjóðarinnar hefðu verið „álagsprófaðar“ og niðurstaða sjóðsins hafi verið sú að þær væru sjálfbærar og á traustri niðurleið. „Ég vil líka benda á að stór hluti þeirra takmarkast við þrönga fyrirtækjaafkima og því afmarkað vandamál fyrir hlutaðeigandi fyrirtæki, en ekki fyrir landið í heild.“ Þá áréttar Flanagan að AGS hafi ekki gert kröfu um að Icesave-deilunni yrði lokið áður en kæmi að fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunarinnar sem nú er lokið. Hins vegar hafi deilan orðið til þess að fjármögnun lánapakka til Íslands hafi verið ótrygg og því hafi áætlunin tafist. Greiðsla á öðrum hluta lánafyrirgreiðslu AGS gangi því í gegn núna, en upphæðin nemur nálægt 167,5 milljónum dollara, eða tæplega 21 milljarði króna. Heildargreiðslur nemi því nú rúmlega milljarði Bandaríkjadala. Þá árétta fulltrúar AGS að gjaldeyrishöft sem hér eru forði því að stýrivextir þyrftu að vera enn hærri til að styðja við gengi krónunnar, jafnvel 40 til 50 prósent. Núna þurfi að halda áfram að styðja við efnahag heimila og byggja upp og endurskipuleggja fyrirtæki, en frekari áföll þar gætu skilað sér í gjaldþrotum fólks sem missir vinnuna. Þá sé lag að hefja varfærið afnám gjaldeyrishafta. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Sjá meira