Auðveldar ríkjum að segja sig úr ESB Heimir Már Pétursson skrifar 4. nóvember 2009 12:15 Vacalv Klaus, forseti Tékklands, staðfesti sáttmálann með undirritun sinni í gær. Mynd/AP
Auðveldara verður fyrir ríki að segja sig úr Evrópusambandinu eftir að Lissbon-sáttmálinn tekur gildi, en síðustu hindrun í vegi gildistökunnar var rutt burt í gær þegar Tékkar staðfestu sáttmálann. Ný embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjóra verða til með sáttmálanum. Ný stjórnarskrá fyrir Evrópusambandið hefur verið í mótun í mörg ár en innan sambandsins takast á þau öfl sem vilja styrkja stofnanir sambandsins með skýrari hlutverkum annars vegar og hins vegar þau öfl sem vilja draga úr valdi stofnana þess. Eftir að Vacalv Klaus, forseti Tékklands, staðfesti sáttmálann með undirritun sinni í gær, hafa öll ríki Evrópusambandsins staðfest sáttmálann. Talið er að hann geti jafnvel tekið gildi í næsta mánuði. Klaus forseti sagði eftir undirritunina að með henni væri Tékkland ekki lengur fullvalda ríki, en hann er í hópi mestu efasemdarmanna um hlutverk og áhrif sambandsins. Það sem andstæðingar sáttmálans setja helst fyrir sig eru hin nýju embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar og utanríkisstjórans. Forsetinn verður kosinn til tveggja og hálfs árs í senn, en í dag hafa forsætisráðherrar eða forsetar aðildarríkjanna verið oddvitar sambandsins þegar ríki þeirra fara með formennsku í sex mánuði í senn. Þá er mörgum í nöp við að fleiri mál verða nú afgreidd með einföldum atkvæðagreiðslum innan sambandsins en áður. En nú þarf stuðning allra ríkja í flestum málaflokkum til að mál nái fram að ganga. Þetta telja margir skerðingu á fullveldi einstakra aðildarríkja, sem áður gátu stoppað mál. En fyrir ríki sem ekki una hag sínum innan sambandsins, verður auðveldara að segja sig úr sambandinu með gildistöku Lissabonsáttmálans. Þá er líklegt að samþykkt hans muni flýta fyrir viðræðum sambandsins við Ísland og Króatía verður væntanlega meðlimur á allra næstu misserum.
Mest lesið Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Haraldur konungur lagður inn á spítala Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Sjá meira