Benda á fjarveru Dags 4. nóvember 2009 15:23 Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á kosningavöku flokksins í vor.
Fjarveru Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fulltrúa Framsóknarflokksins í skipulagsráði Reykjavíkur, á fundum ráðsins má rekja til þess að hann er formaður Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram í bókun fulltrúa Framsóknarflokks- og Sjálfstæðisflokks í skipulagsráði um mætingu Sigmundar Davíðs á fundi ráðsins. Fulltrúar meirihlutans telja réttast að Samfylkingin byrji á sjálfri sér í þessum efnum vilji flokkurinn að reglur um mætingarskyldu séu skýrari. Þeir benda á fjarveru Dags B. Eggertssonar, borgarfulltrúa og varaformanns Samfylkingarinnar, málinu sínu til stuðnings. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fékk 52.962 krónur greiddar fyrir hvern fund sem hann mætti á í skipulagsráði borgarinnar frá því í ágúst í fyrra. Þetta kemur fram þegar svar skipulags- og byggingarsviðs borgarinnar er skoðað en það var lagt var fram á fundi skipulagsráðs í gær sem svar við fyrirspurn Samfylkingar og Vinstri grænna. Óskað var eftir upplýsingum um mætingu og launakjör Sigmundar Davíðs á umræddu tímabili og kostnað borgarinnar við að kalla inn varamenn í hans stað. Í bókun Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er bent á þá staðreynd að Sigmundur Davíð gegni formennsku í Framsóknarflokknum. „Eins og flestum er kunnugt hefur Sigmundur Davíð Gunnlaugson nefndarmaður í Skipulagsráði Reykjavíkur tekið að sér formennsku í stjórnmálaflokki og hefur af þeim sökum mætt minna á fundi en efni stóðu til í upphafi." Ekki séð hefð fyrir því í stjórnkerfi borgarinnar að fulltrúar gegna trúnaðarstörfum víða og ekki hafi verið gerðar athugasemdir við það fyrr en núna. „Nýjasta dæmið er án efa fjarvera oddvita Samfylkingarinnar, Dags B Eggertssonar síðastliðið ár þar sem hann hefur tekið virkan þátt í stjórn landsmála á meðan hann var á launum hjá borginni. Ef Samfylkingin er að leggja til að reglur verði skýrari en verið hefur er réttast að hún byrji á sjálfri sér," segir í bókun meirihlutans. Minnihlutaflokkarnir lögðu í framhaldinu fram bókun og sögðu fjarveru Dags ekki sambærilega við mál Sigmundar Davíðs. „Fjarvera formanns Framsóknarflokksins í skipulagsráði er einsdæmi í borginni og full ástæða í framhaldi af því að endurskoða reglur borgarinnar. Fjarvera oddvita Samfylkingarinnar eru í engu samræmi við það sem til umræði er í máli Sigmundar Davíðs."
Tengdar fréttir Sigmundur Davíð fékk 53 þúsund fyrir hvern fund Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fékk 52.962 krónur greiddar fyrir hvern fund sem hann mætti á í skipulagsráði borgarinnar frá því í ágúst í fyrra. 4. nóvember 2009 13:54 Hefur mætt á 50% funda í Skipulagsráði Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur mætt á 18 af þeim 36 fundum sem hann hefur átt að sitja í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið haldnir 43 fundir síðan Sigmundur var kosinn í ráðið þann 21.ágúst 2008 en hann var í leyfi á 7 af þeim fundum. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í ráðinu kölluðu eftir yfirliti um fundarsetu Sigmundar á síðasta fundi. 31. október 2009 16:15 Mest lesið Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Innlent Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Erlent Fleiri fréttir Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Sjá meira
Sigmundur Davíð fékk 53 þúsund fyrir hvern fund Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, fékk 52.962 krónur greiddar fyrir hvern fund sem hann mætti á í skipulagsráði borgarinnar frá því í ágúst í fyrra. 4. nóvember 2009 13:54
Hefur mætt á 50% funda í Skipulagsráði Framsóknarmaðurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur mætt á 18 af þeim 36 fundum sem hann hefur átt að sitja í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Alls hafa verið haldnir 43 fundir síðan Sigmundur var kosinn í ráðið þann 21.ágúst 2008 en hann var í leyfi á 7 af þeim fundum. Fulltrúar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar í ráðinu kölluðu eftir yfirliti um fundarsetu Sigmundar á síðasta fundi. 31. október 2009 16:15