Enski boltinn

Gerrard klár í slaginn um helgina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Steven Gerrard í leik með Liverpool.
Steven Gerrard í leik með Liverpool. Nordic Photos / Getty Images

Steven Gerrard á von á því að hann geti spilað með Liverpool gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Gerrard hefur átt við nárameiðsli að stríða en hann kom inn á sem varamaður í leik Liverpool gegn Birmingham fyrir rúmri viku síðan.

Hann hefur síðan þá notað landsleikjafríið til að ná sér á strik. „Ég var mjög þreyttur eftir leikinn gegn Birmingham enda var ég varla tilbúinn til þess að spila á nýjan leik. Ég hafði lítið sem ekkert æft síðustu þrjár vikurnar á undan."

„En mér líður mun betur í dag. Ég hlakka til helgarinnar," sagði Gerrard.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×