Biðlaunakostnaður nemur 88 milljónum 29. apríl 2009 06:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir eru í hópi 31 stjórnmálamanns sem njóta biðlauna. fréttablaðið/auðunn
Biðlaunakostnaður Alþingis í kjölfar þingkosninganna á laugardag nemur tæpum 72 milljónum króna. Biðlaunin eru þau sömu og slétt og fellt þingfarar-kaup; um 520 þúsund krónur á mánuði. Samtals nýtur 31 stjórnmálamaður biðlauna frá Alþingi og stjórnarráðinu. Nítján fyrrverandi þingmenn fá greidd biðlaun í sex mánuði og átta fá biðlaun í þrjá mánuði. Helgast það af þingsetulengd viðkomandi. Hafi þingmaður setið eitt kjörtímabil fær hann biðlaun í þrjá mánuði en hafi hann setið í tvö kjörtímabil eða lengur fær hann biðlaun í sex mánuði. Biðlaunakostnaður stjórnarráðsins vegna stjórnarskiptanna í febrúar nemur rúmlega 16,5 milljónum króna. Þeir sem þá létu af ráðherradómi fá greidd ráðherrabiðlaun – 335 þúsund krónur á mánuði – í sex mánuði. Biðlaunaréttur forsætisráðherra er ríflegri og fær Geir H. Haarde 415 þúsund krónur á mánuði. Björgvin G. Sigurðsson afsalaði sér biðlaunum. Þrír fyrrverandi ráðherrar og þingmenn; Árni M. Mathiesen, Björn Bjarnason og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fá því 885 þúsund krónur á mánuði næstu mánuði en Geir fær 935 þúsund. Fjórir sitja á þingi og njóta biðlaunaréttar vegna setu í síðustu ríkisstjórn. Það á við um Guðlaug Þór Þórðarson, Einar K. Guðfinnsson, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Þórunni Sveinbjarnardóttur. Leggjast 335 þúsund krónur ofan á laun þeirra fyrir þingsetu. Ráðherrar eiga rétt á biðlaunum í sex mánuði, hafi þeir gegnt embætti samfellt í eitt ár en í þrjá mánuði hafi þeir setið skemur. Fyrrverandi þingmenn njóta fullra biðlaunaréttinda svo fremi sem þeir ráði sig ekki til nýrra starfa. Geri þeir það dragast starfslaun þeirra frá biðlaununum og mismunurinn er greiddur út. Séu launin jafn há eða hærri fellur biðlaunarétturinn niður. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Sjá meira