Alcoa býst við niðurstöðu um helgina 25. september 2009 03:15 Sveitarstjórnarmenn í Norðurþingi hafa lagt mikla áherslu á að fá viljayfirlýsingu um álver við Bakka framlengda. Þeir benda á að engin önnur fyrirtæki en Alcoa hafi sýnt áhuga á að vinna að stóriðju á svæðinu.fréttablaðið/GVA
Alcoa býst við að fá upplýsingar um afstöðu ríkisvaldsins til þess hvort stjórnvöld ætli sér að framlengja viljayfirlýsingu um álver á Bakka, sem rennur út um mánaðamót, á fundi sem Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa, á með Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra um helgina. Erna Indriðadóttir, talsmaður Alcoa, segir að fyrirtækið vinni að því að viljayfirlýsingin verði framlengd og hafi ekki fengið neina „formlega tilkynningu“ um að annað fyrirkomulag standi til. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær er það hins vegar ætlun stjórnvalda að framlengja ekki yfirlýsinguna óbreytta heldur undirrita nýtt samkomulag. Þar verði fleiri aðilar en Alcoa teknir að borðinu án þess þó að Alcoa hætti þátttöku í undirbúningi álvers við Bakka. Markmið þessa nýja fyrirkomulags verði áfram það að undirbúa vikjanir og stóriðjuframkvæmdir við Húsavík. Ekki liggur fyrir hvaða aðilar aðrir en Alcoa hafi sýnt áhuga á verkefninu. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur ítrekað sagst vilja sjá orku í Þingeyjarsýslum nýtta í þágu annarrar atvinnustarfsemi en álvers. Í gær kynnti Skipulagsstofnun að hún hefði fengið til formlegrar meðferðar tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Það eru Alcoa, Landsvirkjun, Þeistareykir ehf. og Landsnet sem standa að hinu sameiginlega mati. Stefnt er að því að ljúka sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers þessara framkvæmda næsta vor. Að því loknu hefjist rannsóknaboranir að nýju til að hægt verði að afla frekari upplýsinga um orkugetu jarðhitasvæðanna. „Það er ein af meginforsendum þess að áform um virkjanir og byggingu álvers á Bakka gangi eftir,“ segir í tilkynningu frá Skipulagsstofnun. Tilraunaborunum var frestað þegar Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, kvað upp úrskurð um að umhverfismat vegna allra þessara framkvæmda skyldi gera sameiginlega. Fram að þeim úrskurði var unnið að umhverfismati fyrir hverja framkvæmd fyrir sig. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Sjá meira