Farðaði stórstjörnurnar í Forbrydelsen 5. nóvember 2009 06:00 á mála hjá Forbrydelsen Hjónin Áslaug Dröfn og Steffen Wiederman komu bæði að gerð annarrar seríunnar um Söruh Lund í Forbrydelsen.Fréttablaðið/Anton
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir, hárgreiðslu- og förðunarfræðingur, sá um förðun á helstu stórstjörnum sakamálaþáttarins Forbrydelsen II (Glæpnum) sem nú slær öll áhorfsmet í dönsku sjónvarpi. Þetta er önnur þáttaröðin um lögreglukonuna Söruh Lund en fyrri þáttaröðin naut mikilla vinsælda hér á landi á sínum tíma. „Þetta vildi þannig til að maðurinn minn, Steffen Wiederman Larsen, er að vinna við þættina. Og þegar ein af þremur förðunarstelpunum forfallaðist vegna veikinda mundi einhver eftir því að Steffen væri giftur förðunarfræðingi,“ segir Áslaug, sem fékk því heldur óvænt atvinnutilboð á föstudegi í sumar þegar tökurnar fóru fram. „Mér var bara sagt að koma út á mánudegi og ekki getur maður sagt nei við svona tilboði.“ Meðal þeirra sem settust í stólinn hjá Áslaugu voru aðalleikarnir tveir, þau Sofie Gråbøl og Mikael Birkkjær. Auk þeirra voru þeir Nicolas Bro og Søren Pilmark meðal gesta hennar. Báðir tveir léku stór hlutverk í kvikmynd Dags Kára, Voksne mennesker. Áslaug var í förðunarteyminu í þremur þáttum og segir þetta hafa verið alveg ótrúlega skemmtilegt. „Ég var reyndar ekki orðin nógu sleip í dönskunni og ruglaði einu sinni saman orðunum terrorister og túristi með nokkuð skondnum afleiðingum.“ En ákveðin togstreita er nú kominn upp á heimili þeirra hjóna því eiginmaðurinn veit hver morðinginn er. „Ég hef reynt að pína það upp úr honum en hann brosir bara og segir mér að fylgjast með. Ég hef samt mínar kenningar og þótt ég hóti honum öllu illu er hann þögull sem gröfin.“- fgg
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Lífið Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Lífið „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Tíska og hönnun „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Tónlist Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Fleiri fréttir Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Sjá meira