Dæmdum nauðgara sleppt 5. nóvember 2009 04:00 Hæstiréttur Snéri úrskurði héraðsdóms við.
Karlmanni, sem dæmdur var í sumar fyrir hrottalega nauðgun, var sleppt að gengnum dómi Hæstaréttar í gær. Hæstiréttur sneri þar með við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem úrskurðað hafði manninn í gæsluvarðhald þar til dómur í máli hans gengi í Hæstarétti, ekki þó lengur en til 22. desember. Maðurinn var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi í júlí í sumar fyrir að nauðga ölvaðri konu með hrottalegum hætti í húsasundi við Trönuhraun í Hafnarfirði. Hann áfrýjaði dómnum til Hæstaréttar. Konan sem fyrir árásinni varð var mjög illa leikin og hlaut fjölmarga alvarlega áverka á líkama og höfði. Eftir árásina greindi sálfræðingur hana þannig að hún hefði orðið fyrir áfalli og kynferðislegu ofbeldi. Henni hefði liðið mjög illa, verið mjög hrædd og sýnt mjög alvarleg streitueinkenni. Í dómi Hæstaréttar segir að Ríkissaksóknari hafi þegar í júlí óskað eftir dómsgerðum í máli mannsins. Þær hafi ekki verið komnar að hálfum fjórða mánuði liðnum. Því hafi ekki verið hægt að dagsetja mál mannsins til munnlegs málflutnings í Hæstarétti. Drátturinn sé óhæfilegur og því ekki komist hjá því að fella gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms úr gildi. Hæstiréttur dæmdi manninn hins vegar í farbann til 22. desember.- jss
Mest lesið Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Regnbogafánar, jafnaðargeð og valkyrjuvá í Hafnarfirði Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Sjá meira