Innlent

Skrifstofustóll tókst á loft og festist í segulómunartæki

Skrifstofustóll tókst á loft og festist inni í segulómunartæki hjá Domus Medica í gær. Sjúklingi var ekið í stólnum að tækinu, en þegar hann stóð upp af stólnum, og settist á bekk segulómunartækisins, þá greip öflugt segulsvið tækisins í stólinn sem flaug inn í opið, þar sem hann situr fastur.

Enginn var í hættu þegar þetta gerðist. Það tekur þrjár vikur að keyra tækið niður til þess að losa stólinn. Þjónustan hjá Dómus skerðist að þessu leyti á meðan en fólki er bent á að reyna að fá tíma annars staðar þar sem boðið er upp á myndgreiningu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×