Enski boltinn

Stóri Sam brjálaður vegna ummæla Trapattoni

Ómar Þorgeirsson skrifar
Sam Allardyce.
Sam Allardyce. Nordic photos/AFP

Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn, er allt annað en sáttur með landsliðsþjálfarann Giovanni Trapattoni hjá Írlandi vegna ummæla Ítalans um miðjumanninn Steven Reid hjá Blackburn.

Trapattoni kvaðst í viðtali efast um að Reid myndi nokkurn tímann jafna sig á hnémeiðslum sem hafa verið að angra hann undanfarið og „Stóri" Sam telur ummælin meiðandi og heimtar afsökunarbeiðni.

„Það er gjörsamlega fáránlegt að landsliðsþjálfari skuli láta hafa eftir sér annað eins bull. Í stað þess að vera hvetjandi þá þarf Steven að vakna upp og lesa í blaði að landsliðsþjálfarinn sé ósáttur með meiðli hans og að hann muni mögulega aldrei spila aftur. Trapattoni ætti að biðja hann formlega afsökunar því Steven er að gera sitt allra besta til þess að ná fyrri styrk," segir Allardyce í viðtali við Sky Sports fréttastofuna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×