Segir ORA vísvitandi blekkja 12. febrúar 2009 18:36
Fyrrverandi framleiðslustjóri hjá ORA segir fyrirtækið vísvitandi blekkja neytendur um uppruna vöru sinnar. ORA fiskibollur séu fjarri því að vera íslenskar, fiskurinn sé færeyskur. Niðursuðuverksmiðjan Ora er rótgróin og flestir álíta líklega vörur þeirra vera íslenskar. En eins og fram kom í fréttaskýringu Stöðvar 2 í gær um Veljum íslenskt átakið eru áhöld um hvað telst íslensk vara. Við vinnslu fréttaskýringarinnar var leitað eftir viðtali við stjórnendur ORA en þeir báðust undan því. Fréttastofa ræddi hins vegar í dag við fyrrverandi framleiðslustjóra ORA, Stefán Rögnvaldsson. Hann starfaði hjá fyrirtækinu í 22 ár, en lét af störfum fyrir nokkrum árum. ORA fiskibollur ruku út eftir að herferð Samtaka iðnaðarins Veljum íslenskt fór af stað. Fimmtíu prósent fleiri bollur seldust í október en að jafnaði. Stefán fullyrðir hins vegar að ORA fiskibollur séu ekki unnar úr íslenskum fiski. Bollurnar séu vissulega soðnar niður og mótaðar á Íslandi. Hvergi kemur fram á dósinni hvaðan fiskurinn er. Um 150 tegundir af matvælum eru seldar undir merkjum ORA. Á mörgum þeirra kemur fram hvar varan er framleidd eða hvaðan hráefnið kemur. En alls ekki öllum. Og því fer fjarri, segir Stefán að megnið af ORA vörum sé framleiddur á Íslandi, miklu nær að það sé um helmingur. Stefán tekur sem dæmi að Ora tómatsósa sé til dæmis framleidd í Bandaríkjunum, sömuleiðis ora ananas, rauðrófur komi tilbúnar í krukkum frá Danmörku, sardínur frá Noregi. Stefán kveðst hafa beitt sér fyrir því sem framleiðslustjóri hjá ORA að innflutta varan væri aðgreind frá hinni erlendu.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira