Enski boltinn

Góður útisigur hjá Guðjóni og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Þórðarson.
Guðjón Þórðarson.

Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar í Crewe Alexandra eru heldur betur að taka við sér í ensku D-deildinni en liðið lagði Darlington, 0-1, á útivelli í kvöld.

Það var Calvin Zola sem skoraði sigurmarkið á 86. mínútu.

Þetta var annar sigur Crewe í röð og liðið virðist því vera komið af stað en Guðjón ætlar klárlega upp með liðið í vetur.

Rúmlega 1.800 manns sáu leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×