Óhemjuvinsæll hryllingur 5. nóvember 2009 06:00 Paranormal Activity Hryllingsmyndin Paranormal Activity verður frumsýnd hérlendis á morgun.
Hryllingsmyndin Paranormal Activity, sem verður frumsýnd hérlendis á morgun, hefur slegið rækilega í gegn í Bandaríkjunum og Kanada síðan hún var frumsýnd fyrir nokkrum vikum. Hún hefur þénað rúmlega 85 milljónir dala, eða um 10,6 milljarða króna, sem er ótrúlegur árangur miðað við að hún kostaði innan við tvær milljónir króna í framleiðslu og var aðeins tekin upp á einni viku. Engin sjálfstætt framleidd mynd í sögunni hefur þénað jafnmikið miðað við framleiðslukostnað. Hefur hún þar með slegið út The Blair Witch Project sem rakaði inn tæpum 250 milljónum dala í miðasölunni víðs vegar um heiminn, eða rúmum þrjátíu milljörðum króna. Hún kostaði aftur á móti 7,5 milljónir króna í framleiðslu. Paranormal Activity var tekin upp á gömlu heimili leikstjórans og handritshöfundarins Oren Peli í San Diego í Kaliforníu. Peli, sem er fyrrverandi tölvuleikjahönnuður, eyddi heilu ári í að innrétta húsið sérstaklega fyrir tökurnar. Til að auka hræðsluáhrifin var notast við handhelda upptökuvél, rétt eins og gert var í The Blair Witch Project með góðum árangri. Myndin er tekin upp í heimildarmyndastíl og fjallar um ungt par, Katie og Micah. Katie heldur því fram að yfirnáttúruleg vera hafi ásótt sig alla sína ævi, þar á meðal á heimili þeirra. Micah kaupir sér þá upptökuvél í von um að festa óskapnaðinn á filmu. Viðtökurnar við myndinni hafa eins og áður sagði verið rosalegar og hafa margir gengið út af henni af hræðslu. Eins og gefur að skilja er framhaldsmynd nú þegar í undirbúningi.
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira