Knúsum rauðhærða fólkið á tónleikum 20. nóvember 2009 05:30 Rauðhærðir standa saman. Kristófer Eðvarðsson hefur hendur í hári Þorsteins Ólafssonar, samstarfsmanns síns í Nögl, og Sigurðar Ásgeirs Árnasonar Olsen í UMTS. Fréttablaðið/GVA
Rauðhærðir eiga undir högg að sækja því fleiri þúsund manns hafa skráð sig meðlimi í svokölluðum „Spörkum í rauðhærða-dagurinn“ á Facebook, þar á meðal nokkur fjöldi Íslendinga. Þegar lögreglan fór að rannsaka hópinn kom í ljós að 14 ára drengur frá Kanada bar ábyrgð á honum. Drengurinn bar fyrir sig húmor en lögreglan tók hart á málinu og lokaði síðunni. Nokkur hræðsla hefur skapast vegna dagsins hér á landi og meðal annars sendi skólastjóri Salaskóla í Kópavogi út tilkynningu til foreldra og varaði við ömurlegum eineltistilburðum. Rauðhærðum meðlimum í hljómsveitunum Nögl og UMTS fannst málið standa sér nærri og bjuggu til „Knúsum rauðhærða-daginn“ á móti. Böndin ætla að gera enn betur en að hvetja fólk til að knúsa rauðhærða og standa fyrir rauðhærðum tónleikum á Sódóma í kvöld. „Allir rauðhærðir fá þá að minnsta kosti samastað eina kvöldstund,“ segir Þorsteinn Ólafsson, trommuleikari í Nögl, meira í gríni en alvöru. Hann segir að það sé yfirleitt lítið mál að vera rauðhærður. „Það kemur reyndar alveg fyrir að fólk sé með einhver leiðindaskot á mann fyrir að vera rauðhærður, en svo fer það yfirleitt á taugum stuttu síðar og byrjar að afsaka sig og draga allt til baka.“ Auk hljómsveitanna Nögl og UMTS (Últra mega technobandið Stefán) ætla hljómsveitirnar Bróðir Svartúlfs og Vicky að styðja málefnið með því að koma fram. Tónleikarnir eru eins og áður segir á Sódómu í kvöld og hefjast klukkan 22. Miðar seldir við innganginn kosta eitt þúsund krónur. - drg
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira