Ríkislögreglustjóri minnir á nágrannavörslu 10. september 2009 14:24
Vegna mikillar fjölgunar innbrota að undanförnu hvetur ríkislögreglustjóri almenning til að huga vandlega að öryggi heimila sinna og gera viðeigandi ráðstafanir til að torvelda innbrot. Í því samhengi minnir ríkislögreglustjóri á mikilvægi nágrannavörslu. Mikilvæg forvörn felst í samvinnu og samheldni fólksins í landinu. Hið sama gildir um eigendur og stjórnendur fyrirtækja. Samvinnu og árvekni er einnig þörf á því sviði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkislögreglustjóra. Þá segir ennfremur að sú óæskilega þróun sem orðið hafi hér á landi komi ekki á óvart og sé í samræmi við mat lögreglunnar. Í matsskýrslu ríkislögreglustjórans um skipulagða glæpastarfsemi sem gerð var opinber í febrúarmánuði sl. segir m.a. um skipulögð innbrot og þjófnaði: „Fyrir liggur að innlendir og erlendir hópar stunda skipulögð innbrot og þjófnaði hér á landi. Greiningardeild telur að slík starfsemi verði áfram áberandi og viðbrögð við henni ofarlega á verkefnalista lögreglu. Vitað er að erlendir afbrotamenn koma gagngert til Íslands í þeim tilgangi að skipuleggja og fremja þjófnaði. Þá eru fyrir hendi vísbendingar um að þessir aðilar kúgi fé út úr samlöndum sínum. Markaður fyrir stolnar vörur mun stækka í kjölfar efnahagshrunsins." Í sömu skýrslu frá árinu 2008 segir m.a. um þetta atriði: „Allar upplýsingar og vísbendingar greiningardeildar ríkislögreglustjóra benda til þess að skipulögð glæpastarfsemi færist í vöxt á Íslandi og gerist sífellt fjölbreytilegri. Þetta á ekki síst við um þá starfsemi, sem erlendir glæpahópar er rætur eiga að rekja til Austur-Evrópu, halda uppi hér á landi. Fyrir liggur að austur-evrópskir ríkisborgarar eru „fluttir inn" hingað til lands ýmist til skemmri dvalar eða lengri í þeim tilgangi einum að fremja afbrot. Vísbendingar eru um að þessi starfsemi sé mun umfangsmeiri en flestir höfðu ætlað. " Fagna ber þeim góða árangri sem lögregla hefur náð að undanförnu við að upplýsa skipulögð innbrot þjófaflokka. Ríkislögreglustjóri minnir hins vegar á mikilvægi þess að almenningur og stjórnendur fyrirtækja haldi vöku sinni gagnvart glæpastarfsemi af þessu tagi.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Sjá meira