Innlent

Öryggisverðir vilja varnarhunda

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragna Árnadóttir segir að fara verði mjög varlega í að breyta heimildum til beitingar valds.
Ragna Árnadóttir segir að fara verði mjög varlega í að breyta heimildum til beitingar valds. Mynd/GVA
Rætt hefur verið um að öryggisverðir fái heimild til þess að beita varnarhundum þar sem starf þeirra fer fram á fáförnum stöðum. Hins vegar hefur ekki komið til tals í ráðuneytinu að öryggisverðir fái heimild til þess að beita valdbeitingartækjum. Í dómsmálaráðuneytinu stendur yfir vinna um breytingar á lögum um öryggisþjónustu.

Vísir greindi frá því í morgun að brotist hefði verið inn í leikskólann Rofaborg í nótt. Öryggisvörður frá Öryggismiðstöðinni var snöggur á staðinn og sá brotna rúðu. Stuttu síðar yfirbugaði öryggisvörðurinn mann í nýbyggingu skólans en lögreglumaðurinn handtók síðan manninn.

Samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur frá öryggisvörðum er atvik eins og þetta ekki einsdæmi. Það er að segja að öryggisverðir standi innbrotsþjófa að verki og haldi þeim þar til að lögregla kemur á staðinn. Þetta vekur upp spurningar um það hvort heimila eigi öryggisvörðum að nota valdbeitingatæki á borð við kylfur eða handjárn.

Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir í samtali við Vísi að hún muni ekki eftir því að slík umræða hafi farið fram í ráðuneytinu. Um þessar mundir sé unnið að endurskoðun á lögum um öryggisþjónustu sem miði að því að skilgreina hlutverk lögreglumanna annars vegar og öryggisvarða hins vegar.

Samkvæmt lögreglulögum er heimild til valdbeitingar bundin við þá sem hafa lögregluvald og fangaverði. Ragna segir að spurningin um valdbeitingaheimildir sé slík grundvallarspurning að það þurfi að stíga mjög varlega til jarðar ef gera eigi breytingar þar á.

Hins vegar hafa farið fram umræður í nefnd sem vinnur að endurskoðun á lögum um öryggisþjónustu um það hvort öryggisverðir fái heimild til þess að nota varnarhunda á fáförnum stöðum. Slíkir hundar eru hins vegar einungis notaðir til varnar og ekki notaðir til valdbeitingar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×