Boðið í lúxusferð til Indlands 10. september 2009 06:00 Formleg viðurkenning Ólafur tekur við viðurkenningu úr hendi menntamálaráðherrans Katrínar Jakobsdóttur. Heimildarmynd hans, The Amazing Truth About Queen Raquela, er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs.Fréttablaðið/GVA
Ólafur Jóhannesson hefur í nógu að snúast vegna kvikmyndarinnar Queen Raquela. Hann er á leið á flotta hátíð á Indlandi. „Alltaf gaman að hitta menntamálaráðherra sem er yngri en maður sjálfur,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson sem tók við formlegri viðurkenningu úr hendi Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra að mynd hans, The Amazing Truth About Queen Raquela, væri tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs. Afhendingin fór fram í húsakynnum menntamálaráðuneytisins í gær. Ólafur er nú á fullu við að klippa kvikmynd sína Laxdælu Lárusar Skjaldarsonar en eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu verður þeim titli breytt þegar nær dregur frumsýningu. En að drottningunni Raquelu og heimildarmyndinni um hana sem farið hefur sigurför um heiminn. Myndin verður sýnd á fyrstu samkynhneigðu kvikmyndahátíðinni í Serbíu sem nefnist Merlinka og verður haldin nú um helgina. Samkynhneigðir hafa átt erfitt uppdráttar í Serbíu og Gay Pride-gangan í Belgrad hefur yfirleitt leyst upp í slagsmál þegar öfgahópar hafa ráðist á gönguna. Frægt var þegar einn slíkur öfgahópur hótaði gestum Eurovision fyrir tveimur árum að allir þeir sem opinberuðu samkynhneigð sína yrðu ekki látnir óáreittir. „En nú er kominn tími til að víkka aðeins út sjóndeildarhringinn hjá þessu liði,“ segir Ólafur sem kemst því miður ekki til Serbíu til að vera viðstaddur hátíðina en var að vonum ánægður að myndin skyldi rata þarna inn. En Ólafur ætlar hins vegar að þiggja boð kvikmyndahátíðar í Bombay á Indlandi. „Já, þetta er einhver svakaleg lúxusferð í fimm daga, allt borgað. Og maður getur ekki sagt nei við slíku,“ segir Ólafur en hann var að vonum ánægður með þá miklu viðurkenningu sem Queen Raquela hefur fengið. „Þetta er ekki bara einhver ódýr afþreying heldur er þetta saga með fallegan boðskap. Og svo er það líka þannig, að maður er alveg óskaplega hamingjusamur yfir því að hafa rambað á þessa sögu. Krafturinn í Raquelu er svo óskaplega mikill að maður verður einhvern veginn bara fyrir henni.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Sjá meira