Segir meirihluta hafa verið starfandi á Álftanesi 10. september 2009 14:37 Sigurður Magnússon, fyrrverandi bæjarstjóri á Álftanesi. Mynd/Anton Brink
Sigurður Magnússon, fráfarandi bæjarstjóri á Álftanesi, segir rangt að meirihlutalaust hefur verið í bæjarfélaginu í einn og hálfan mánuð. Hann telur eðlilegast að einn af bæjarfulltrúum Álftaneshreyfingarinnar myndi nýjan meirihluta með sjálfstæðismönnum. Álftaneshreyfingin hlaut fjóra bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum 2006 og Sjálfstæðisflokkurinn þrjá. Eftir talsverðan óróleika í bæjarpólitíkinni og ekki síst innan Álftaneshreyfingarinnar undanfarin misseri var Sigurði sagt upp störfum á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi. Margrét Jónsdóttir, einn af fjórum bæjarfulltrúum Álftaneshreyfingarinnar, studdi tillögu sjálfstæðismanna þess efnis. Því hefur verið haldið fram að meirihlutalaust hefur verið í bæjarfélaginu í einn og hálfan mánuð. Sigurður segir að það sé rangt. Viðræður um endurskipulagningu meirihlutasamstarfsins hafi staðið yfir að undanförnu og á meðan hafi verið starfandi meirihluti í bæjarfélaginu. „Þrátt fyrir vandræði höfum verið að reyna að leysa okkar mál," segir Sigurður um meirihlutasamstarfið. Ekki hafi verið um málefnaágreining að ræða heldur samstarfsvanda. Sigurður telur eðlilegt að Margrét stígi skrefið til fulls og myndi nýjan meirihluta með þremur bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks. Annað væri ábyrgðarleysi af hennar hálfu þar sem hún studdi tillögur sjálfstæðismanna á fundinum í gær um annarsvegar vantraust á hann og hinsvegar nýjan forseta bæjarstjórnar úr röðum sjálfstæðismanna. Þrátt fyrir að Sigurður stígi nú úr stóli bæjarstjóra kveðst hann bjartsýnn á gott gengi Álftaneshreyfingarinnar í næstu kosningum. Fjölgað hafi í baklandinu þrátt fyrir óeiningu meðal bæjarfulltrúa hreyfingarinnar.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Fleiri fréttir Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Sjá meira